Fimmtudagur, 19. mars 2009
Áskorun: Endurskoðið stýrivaxtalækkun
Hin nýja peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti fyrir stundu að lækka ætti stýrivexti um 1%.
Það þýðir að peningastefnunefnd ætlar að lækka stýrivexti úr 18% í 17%.
1% stýrivaxtalækkun er blaut tuska framan í heimili og fyrirtæki þessa lands. Nefndin hefði að mínu mati átt að leggja til mun meiri lækkun stýrivaxta.
Það verður fróðlegt að sjá hver viðbrögð forsvarsmanna ríkisstjórnarinnar við þessari vaxtalækkun verða.
Ég er viss um að heimilin í landinu og forsvarsmenn atvinnulífsins munu lýsa yfir sömu vonbrigðum með þessa ákvörðun nefndarinnar og ég hef hér gert.
Vilji stjórnvöld, ríkisstjórn og Seðlabanki Íslands, beita sér fyrir því að bæta kjör almennings og fyrirtækja er nauðsynlegt og skynsamlegt að grípa nú þegar til þess ráðs að lækka stýrivexti verulega og grípa til róttækra aðgerða til treysta rekstur fyrirtækjanna og létta undir með þeim.
Lækkun stýrivaxta um 1% er einungis hænuskref í þá átt.
Undir venjulegum kringumstæðum veikir lækkun stýrivaxta gengi gjaldmiðla. Á Íslandi eru aðstæður nú hins vegar ekki venjulegar og hafa raunar ekki verið lengi. Háir stýrivextir þjóna við núverandi aðstæður ekki þeim tilgangi að verja gengi krónunnar. Það ætti öllum að vera orðið ljóst. Þeir koma afar illa niður á almenningi og atvinnufyrirtækjum og halda þeim í rekstrarlegri herkví.
Heimilin í landinu þola ekki þessi vaxtakjör. Það gera fyrirtækin ekki heldur. Með gildandi gjaldeyrishöftum voru gríðarlegar hömlur settar á flutning fjármagns úr landi. Að sama skapi var þeim sem afla sér tekna erlendis gert skylt að flytja fjármuni sína til Íslands að viðlagðri refsiábyrgð. Við slíkar aðstæður er allt að því ómögulegt að rökstyðja hvers vegna stýrivextir eru svo háir. Rökréttara væri að þeir væru afar lágir.
Veruleg lækkun stýrivaxta nú kæmi sér afar vel fyrir fólk og fyrirtæki í landinu, sem því miður hafa ekki fengið margar jákvæðar fréttir á síðustu dögum. Skynsamlegra hefði verið að taka stórt skref og lækka vexti duglega. Það er ekki síður nauðsynlegt að gera allt til að bjarga því sem bjargað verður í íslensku atvinnulífi.
Flestir virðast vera sammála um mikilvægi slíkra aðgerða og það er ekki eftir neinu að bíða. Nú verða stjórnvöld og seðlabanki að setja hag almennings og rekstur fyrirtækja í forgang og reyna að tryggja að hann geti borið sig þrátt fyrir afleitar aðstæður á fjármálamarkaði. Þeim er nú beinlínis lífsnauðsynlegt að geta fjármagnað sig á viðunandi kjörum, sem ekki hafa verið í boði lengi.
Með því að lækka vexti með myndarlegum hætti nú hefðu stjórnvöld og Seðlabankinn treyst grundvöll atvinnulífsins og enduruppbyggingu þess og dregið úr hættu á frekara atvinnuleysi.
Ég skora á peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands að endurskoða ákvörðun sína og lækka stýrivexti verulega nú þegar til hagsbóta fyrir almenning og fyrirtækin í landinu.
Sigurður Kári.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:06 | Facebook
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- allib
- almaogfreyja
- andrigeir
- audbergur
- audunnh
- abg
- axelaxelsson
- arniarna
- aslaugfridriks
- astamoller
- baldher
- baldvinjonsson
- benediktae
- bergrun
- kaffi
- bergurben
- bjarnihardar
- bjarnimax
- bjorgvinr
- sveifla
- binnag
- bryndisharalds
- skordalsbrynja
- brandarar
- charliekart
- dansige
- doj
- deiglan
- doggpals
- egillg
- erla
- erlendurorn
- skotta1980
- ea
- fsfi
- vidhorf
- hressandi
- gammurinn
- gerdurpalma112
- gisliivars
- gisliblondal
- gillimann
- grettir
- gudni-is
- gummibraga
- phoenix
- gunnarbjorn
- gussi
- laugardalur
- habbakriss
- smali
- haddi9001
- hhbe
- handsprengja
- 730bolungarvik
- heimssyn
- herdis
- hildurhelgas
- drum
- hjaltisig
- hlekkur
- kolgrimur
- hlodver
- don
- hvitiriddarinn
- ingabesta
- golli
- ibb
- bestiheimi
- jakobk
- fun
- stjornun
- skallinn
- jonasegils
- forsetinn
- jonmagnusson
- bassinn
- jonsnae
- julli
- komment
- karisol
- kje
- kjarrip
- kjartanvido
- kolbrunb
- kristinrichter
- kristjanb
- kristjangudm
- liljabolla
- altice
- maggaelin
- gummiarnar
- martasmarta
- mal214
- nielsfinsen
- ottoe
- olibjossi
- obv
- nielsen
- skari
- pkristbjornsson
- jabbi
- pbj
- storibjor
- iceland
- pjeturstefans
- raggibjarna
- raggiraf
- raggipalli
- ragnar73
- schmidt
- bullarinn
- salvor
- fjola
- sigbragason
- vitaminid
- joklamus
- sv11
- sjonsson
- siggikaiser
- sisi
- siggisig
- sigurgeirorri
- mogga
- sigurjonb
- sms
- sjalfstaedi
- hvala
- hvirfilbylur
- stebbifr
- eyverjar
- styrmirh
- summi
- brv
- sveinn-refur
- stormsker
- saethorhelgi
- tidarandinn
- daystar
- valdimarjohannesson
- valgerdurhalldorsdottir
- vefritid
- nytthugarfar
- vibba
- villagunn
- va
- villithor
- xenon
- thorbjorghelga
- steinig
- thorsteinnhelgi
- thorasig
- doddidoddi
- thorolfursfinnsson
- toddi
- hugsun
- ornsh
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.