Stjórnlagaþing?

Er ekki eitthvað bogið við það að vilja eyða 1.500 milljónum króna í að koma á stjórnlagaþingi miðað við ástandið í þjóðfélaginu?

Væri ekki skynsamlegra að nota þennan eina og hálfa milljarð króna af skattfé í einhver önnur verkefni?

Og verður þessi rándýra hugmynd ekki einn furðulegri í ljósi þess að nú þegar er starfrækt stjórnlagaþing á Íslandi?

Alþingi Íslendinga er stjórnlagaþing í þeim skilningi að þar eru stjórnlög sett, þ.e. frumvörp til stjórnskipunarlaga eru lögð fram, flutt og samþykkt og svo borin undir þjóðaratkvæði.

Í ljósi þessa veltir maður því eðlilega fyrir sér hvort ekki væri skynsamlegra að verja þessum fjármunum með öðrum hætti.

Við núverandi aðstæður í efnahagslífinu er ég þeirrar skoðunar að ríkisstjórnin ætti frekar að einbeita sér að því að finna leiðir til þess að koma heimilum þessa lands til bjargar.  Til þess að koma hjólum atvinnulífins í gang á nýjan leik og til þess að endurreisa bankakerfið.

Breytingar á stjórnarskránni hafa ekkert með þessi viðfangsefni að gera.

Sigurður Kári.

www.sigurdurkari.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband