Sunnudagur, 16. september 2007
Maó, sagan sem aldrei var sögð
Bókin ,,Maó, sagan sem aldrei var sögð", eftir hjónin Jung Chang og Jon Halliday, er komin út hjá Máli og menningu. Þýðandi bókarinnar á íslensku er Ólafur Teitur Guðnason, blaðamaður á Viðskiptablaðinu.
Óhætt er að segja að bókin um Maó sé athyglisverð enda eru hún ein af umtöluðustu og umdeildustu ævisögum sem út hafa komið á síðustu árum.
Söguskýringar á Maó hafa í gegnum tíðina verið ákaflega misvísandi. Fylgismenn hans í Kína og á vesturlöndum hafa í gegnum tíðina dregið upp af honum fagra mynd á meðan aðrir sem hafa haft efasemdir um ágæti hans lýst honum sem mesta illmenni sögunnar, manni sem hafi skotið öðrum harðstjórum á borð við Josef Stalín og Adolf Hitler ref fyrir rass. Svo yfirgripsmikil hafi illvirki hans verið, enda hafi Maó ekki vílað fyrir sér að fórna lífum um 70 milljóna þegna sinna til þess að ná fram pólitískum markmiðum sínum og þjóna valdasýki sinni, m.a. í hungursneiðum Kína og í Menningarbyltingunni svokölluðu.
Sjálfur hallast ég að síðari lýsingunni á Maó og ég þykist vita að höfundar hinnar nýútkomnu bókar gera það líka.
Hins vegar eru, eins og áður segir, ekki allir á sama máli og svo virðist sem Maó eigi sér enn í dag sína málsvara. Einn þeirra er Arnþór Helgason, sem starfað hefur sem blaðamaður á Morgunblaðinu, sem telur að Maó hafi komið ýmsu góðu til leiðar í valdatíð sinni þó vissulega hafi hann mörg mannslíf á samviskunni. Í pistli á heimasíðu sinni segir Arnþór m.a.:
,,Ekki ætla ég að halda því fram að Mao hafi verið einhver engill. Hann var heldur enginn djöfull í mannsmynd. Hins vegar verður að skoða þróun hans í samhengi við kínverska sögu og þær hefðir sem kínverska þjóðin hefur orðið að glíma við. Kínverjum hefur enn ekki tekist til fulls að brjóta af sér fjötra margs konar áþjánar sem fylgdi keisaraveldinu. Valdatími Maos formanns var þó merk tilraun til þess.
Lengi lifi hugsun Maos formanns!
Lengi lifi umræðan um Mao formann!"
Þetta er merkileg lofræða um Maó og það verður fróðlegt að sjá hversu vel hún rímar við þá frásögn sem fram kemur í hinni nýju bók.
Það er líka merkilegt, í ljósi sögunnar, að blaðamaður á Morgunblaðinu skuli fara orðum sem þessum um Maó formann. Einhverntíma hefði slíkt eitt og sér vakið sérstaka athygli.
Sigurður Kári.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 203789
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
allib
-
almaogfreyja
-
andrigeir
-
audbergur
-
audunnh
-
abg
-
axelaxelsson
-
arniarna
-
aslaugfridriks
-
astamoller
-
baldher
-
baldvinjonsson
-
benediktae
-
bergrun
-
kaffi
-
bergurben
-
bjarnihardar
-
bjarnimax
-
bjorgvinr
-
sveifla
-
binnag
-
bryndisharalds
-
skordalsbrynja
-
brandarar
-
charliekart
-
dansige
-
doj
-
deiglan
-
doggpals
-
egillg
-
erla
-
erlendurorn
-
skotta1980
-
ea
-
fsfi
-
vidhorf
-
hressandi
-
gammurinn
-
gerdurpalma112
-
gisliivars
-
gisliblondal
-
gillimann
-
grettir
-
gudni-is
-
gummibraga
-
phoenix
-
gunnarbjorn
-
gussi
-
laugardalur
-
habbakriss
-
smali
-
haddi9001
-
hhbe
-
handsprengja
-
730bolungarvik
-
heimssyn
-
herdis
-
hildurhelgas
-
drum
-
hjaltisig
-
hlekkur
-
kolgrimur
-
hlodver
-
don
-
hvitiriddarinn
-
ingabesta
-
golli
-
ibb
-
bestiheimi
-
jakobk
-
fun
-
stjornun
-
skallinn
-
jonasegils
-
forsetinn
-
jonmagnusson
-
bassinn
-
jonsnae
-
julli
-
komment
-
karisol
-
kje
-
kjarrip
-
kjartanvido
-
kolbrunb
-
kristinrichter
-
kristjanb
-
kristjangudm
-
liljabolla
-
altice
-
maggaelin
-
gummiarnar
-
martasmarta
-
mal214
-
nielsfinsen
-
ottoe
-
olibjossi
-
obv
-
nielsen
-
skari
-
pkristbjornsson
-
jabbi
-
pbj
-
storibjor
-
iceland
-
pjeturstefans
-
raggibjarna
-
raggiraf
-
raggipalli
-
ragnar73
-
schmidt
-
bullarinn
-
salvor
-
fjola
-
sigbragason
-
vitaminid
-
joklamus
-
sv11
-
sjonsson
-
siggikaiser
-
sisi
-
siggisig
-
sigurgeirorri
-
mogga
-
sigurjonb
-
sms
-
sjalfstaedi
-
hvala
-
hvirfilbylur
-
stebbifr
-
eyverjar
-
styrmirh
-
summi
-
brv
-
sveinn-refur
-
stormsker
-
saethorhelgi
-
tidarandinn
-
daystar
-
valdimarjohannesson
-
valgerdurhalldorsdottir
-
vefritid
-
nytthugarfar
-
vibba
-
villagunn
-
va
-
villithor
-
xenon
-
thorbjorghelga
-
steinig
-
thorsteinnhelgi
-
thorasig
-
doddidoddi
-
thorolfursfinnsson
-
toddi
-
hugsun
-
ornsh
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.