Miðvikudagur, 5. september 2007
Það er gott að búa á Íslandi
Vefsíða Morgunblaðsins birtir frétt þess efnis í dag að Ísland sé í öðru sæti á lista yfir þau ríki þar sem lífgæði eru mest. Í fyrsta sæti eru frændur okkar Norðmenn en í sætinu fyrir neðan okkur Íslendingar eru Ástralir. Fram kemur í fréttinni að listinn sé byggður á niðurstöðum rannsóknar þar sem borið var saman efnahagslíf 183 ríkja.
Samkvæmt listanum eru lífgæði mest í eftirtöldum löndum:
1. Noregur
2. Ísland
3. Ástralía
4. Írland
5. Svíþjóð
6. Kanada
7. Japan
8. Bandaríkin
9. Finnland, Holland og Sviss
12. Belgía og Lúxemborg
14. Austurríki
15. Danmörk
16. Frakkland
17. Ítalía og Bretland
19. Spánn
20. Nýja Sjáland
Niðurstaða rannsóknarinnar og afar sterk staða Íslands í samanburði við aðrar þjóðir heimsins hlýtur að vera til merkis um að vel hafi tekist við stjórn efnahagsmála á Íslandi á síðustu árum og áratugum. Þessar niðurstöður ættu jafnframt að sýna almenningi í eitt skipti fyrir öll hversu ótrúverðugur málflutningur þeirra stjórnmálamanna, sem setið hafa í stjórnarandstöðu á síðustu árum hefur verið, en þeir hafa ítrekað haldið því fram að lífskjör og lífsgæði á Íslandi standist ekki samanburð við önnur ríki.
Þegar listinn er skoðaður vekur athygli að í Noregi og á Íslandi skuli lífsgæði vera meiri en í löndum Evrópusambandsins. Því hefur þráfaldlega verið haldið fram af Evrópusinnum að með inngöngu Íslands í Evrópusambandið muni lífgæði hér á landi batna til mikilla muna.
Af niðurstöðum rannsóknarinnar að dæma virðast bæði Íslendingar og Norðmenn braggast ágætlega án þess að vera undir verndarvæng kommisaranna í Brussel.
Sigurður Kári.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:00 | Facebook
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
allib
-
almaogfreyja
-
andrigeir
-
audbergur
-
audunnh
-
abg
-
axelaxelsson
-
arniarna
-
aslaugfridriks
-
astamoller
-
baldher
-
baldvinjonsson
-
benediktae
-
bergrun
-
kaffi
-
bergurben
-
bjarnihardar
-
bjarnimax
-
bjorgvinr
-
sveifla
-
binnag
-
bryndisharalds
-
skordalsbrynja
-
brandarar
-
charliekart
-
dansige
-
doj
-
deiglan
-
doggpals
-
egillg
-
erla
-
erlendurorn
-
skotta1980
-
ea
-
fsfi
-
vidhorf
-
hressandi
-
gammurinn
-
gerdurpalma112
-
gisliivars
-
gisliblondal
-
gillimann
-
grettir
-
gudni-is
-
gummibraga
-
phoenix
-
gunnarbjorn
-
gussi
-
laugardalur
-
habbakriss
-
smali
-
haddi9001
-
hhbe
-
handsprengja
-
730bolungarvik
-
heimssyn
-
herdis
-
hildurhelgas
-
drum
-
hjaltisig
-
hlekkur
-
kolgrimur
-
hlodver
-
don
-
hvitiriddarinn
-
ingabesta
-
golli
-
ibb
-
bestiheimi
-
jakobk
-
fun
-
stjornun
-
skallinn
-
jonasegils
-
forsetinn
-
jonmagnusson
-
bassinn
-
jonsnae
-
julli
-
komment
-
karisol
-
kje
-
kjarrip
-
kjartanvido
-
kolbrunb
-
kristinrichter
-
kristjanb
-
kristjangudm
-
liljabolla
-
altice
-
maggaelin
-
gummiarnar
-
martasmarta
-
mal214
-
nielsfinsen
-
ottoe
-
olibjossi
-
obv
-
nielsen
-
skari
-
pkristbjornsson
-
jabbi
-
pbj
-
storibjor
-
iceland
-
pjeturstefans
-
raggibjarna
-
raggiraf
-
raggipalli
-
ragnar73
-
schmidt
-
bullarinn
-
salvor
-
fjola
-
sigbragason
-
vitaminid
-
joklamus
-
sv11
-
sjonsson
-
siggikaiser
-
sisi
-
siggisig
-
sigurgeirorri
-
mogga
-
sigurjonb
-
sms
-
sjalfstaedi
-
hvala
-
hvirfilbylur
-
stebbifr
-
eyverjar
-
styrmirh
-
summi
-
brv
-
sveinn-refur
-
stormsker
-
saethorhelgi
-
tidarandinn
-
daystar
-
valdimarjohannesson
-
valgerdurhalldorsdottir
-
vefritid
-
nytthugarfar
-
vibba
-
villagunn
-
va
-
villithor
-
xenon
-
thorbjorghelga
-
steinig
-
thorsteinnhelgi
-
thorasig
-
doddidoddi
-
thorolfursfinnsson
-
toddi
-
hugsun
-
ornsh
Athugasemdir
Heyr aftur! ;)
Hjörtur J. Guðmundsson, 5.9.2007 kl. 23:49
Verður maður ekki bara að fara að venja komur sína hingað í hreiður hinna bókstafstrúuðu, er telja sig hægrimenn. Það er nokkuð skemmtileg lesninga hérna að því er virðist og Sigurður Kári ekki svo alslæmur þegar upp er staðið.
Hins vegar má velta því fyrir sér hvað þessa grein varðar og í tengslum við Evrópumálefni. Kjörum hverra okkar borgara þessa lands, er best borgið utan ESB, ég leyfi mér að fullyrða að almennt launafólk og líklega miðstéttarmeðaljónar hérlendis komi til með að hafa það mun betra í Evruvæddu þjóðfélagi, innan ESB. Ef að líkum lætur yrði bæði fæðis, húsnæðis og vaxtakostnaður mun lægri. Og sennilega almenn lífskjör.
Þó Sjallarnir hafi gert margt gott á valdaárum sínum þá mega menn ekki blindast alveg. Gleyma almenningi í gróðabólgu fjármálafyrirtækjanna. Og skatttekjuveislu hins opinbera.
Ef þú Sigurður Kári, sest niður í dag með nokkrar viðmiðunartölur sem m.a. bankar nota til þess að greiðslumeta fólk í húnæðiskaupahugleiðingum. Og þú byrjar að reikna laun meðaljónsins í samfélaginu, ég er ekki að tala um lægstu launin, þá má þér verða ljóst mjög fljótlega að hér á landi fer að vaxa upp kynslóð eignleysingja, sem þrátt fyrir ágætis tekjur, á engan veginn kost á því t.d. strax eftir að námi lýkur. Að festa kaup á eigin íbúðarhúsnæði. Einfaldlega vegna þess hve illa hefur tekist að halda utan um efnahagsmálin hvað þetta tiltekna atriði varðar. Orsökin eru dýrir peningar, vaxtaokur og annað tilheyrandi. Sem samantekið er að kyrkja ungt fólk í dag sem hefur mikla fjárfestingarþörf í íbúðarhúsnæði fyrir sig og börn sín, háan rekstrarkostnað í formi matarreikninga, dagheimilsgjalda og annarra liða. Og ég gæti lengi haldið áfram.
Ef ekki verður veruleg breyting á þessu til bóta fyrir þennan svokallað almenning, má allt eins búast við því að úr grasi vaxi harðsnúin hópur af vinstris sinnum, er alls ekki finna sér stað í breiðum stórkrataflokki Sjallana. Því má búast við því að efnhagsbyltin Sjallana komið á endanum til með að verða þeirra banabiti.
Við endum hér með lítinn Sjálfstæðisflokk, hægriflokk eignamanna og þeirra er hafa hag af Evruleysi og háu vaxtastigi peninga. Og líklega stóra vinstrikrataflokk (spruning hvað hann á eftir að heita þá! ).Sem fólk mun fylkja sér á bak við til að fá fram jafn sjálfsagða hluti og þak yfir höfuðið og mat á diskinn sinn.
Bylting öreiganna, kemur fyrr en ykkur grunar.
;o)
Óskar Nafnleyndar (IP-tala skráð) 6.9.2007 kl. 00:50
Ég skil ekki hvernig fólk getur trúað því að kjör okkar batni í ESB þegar kjörin þar eru almennt lakari eins og sést á þessum lista. Það er engin tilviljun að Norðmenn eru einnig hikandi þegar kemur að þessu bandalagi, þeir nefnilega hafa það svo gott líka.
Í ESB á að jafna út þannig að svipuð lífsgæði verði í því öllu. Þau ríki sem hafa það best munu því þurfa að borga undir þau sem eru enn í þróun. Við þyrftum því líklega að borga meira en við myndum fá til baka (bæði í beinum peningum og auðlindum).
Hinsvegar er alveg sjálfsagt að skipta um gjaldmiðil, en því miður er það bara þannig að það er ekki hægt að taka upp Evruna án þess að ganga í ESB. Viljum við festast í ríkinu eftir nokkur ár eða vera áfram sjálfstæð? Það þarf ekki að ganga í Bandaríkin til þess að taka upp dollarann.
Geiri (IP-tala skráð) 6.9.2007 kl. 10:51
Spurning um kjör hvaða þjóðfélagshópa? Efstu laga samfélagsins eða hinna neðstu?
Miða við lífskjör almennings í ESB löndum, þá eru þau mun betri en hér á landi. Því þar þykir ekki lúxus að eiga mat á borðið og húsnæði yfir höfuðið.
Hvað varðar einhliða upptöku annars gjaldmiðils, þá virðast menn skiptast þar í nokkra hópa og rökin sem færð eru fyrir því, svipar oft til "afþvíbara trúmálaraka". Og sú þróun sem er að verða hér er einföld, þ.e. fyrirtæki fara að vinna með evrur og í evrum. Þeir sem eiga kost á fara að fá laun í evrum og skuldsetja sig í evrum. Hvort sem Geir eða ESB líkar betur eða ver.
Erlend lántaka fjölda fólks er vísbending um þetta, hins vegar er þar viðbótarskammheimta innlendra banka í formi umsýslugjalds upp á líkega ein 3%. Ásamt þeirri griðarlegu gengisáhættu er fylgir gjaldmiðli okkar. Líklega þarf ekki nema að einn sjóðsstjóri í þýskalandi fari á taugum og dömpi jöklabréfum inn á markaðinn til þess að dómínóið fari af stað. Og krónan falli um svona 40-50% á einu bretti, og hvað þá? Er þá ekki bara betra að loka Seðlabankanuum og senda Davíð í frí?
Það skondna við þetta allt saman er að við erum að reyna að stýra örríkishagkerfi eftir hagfræðikennningum sem áttu við á tímum Viktóríu í Breska heimsveldinu. Í dag gilda því miður bara önnur lögmál. Skrípaleikur sá er tengist því að Seðlabanki Íslands ráði t.d. einhverju er beínlínis hlægilegur, stýritæki hans eru gagnslaus og vita það flestir ef ekki allir sem eitthvað hafa vit á hagfræði.
Stóra málið er að hér eru peningar of dýrir, sem veldur bólgum á hinum ýmsu sviðum hagkerfisins. Stjórnmálamenn okkar hafa, af því er virðist hvorki þekkingu né getu til að taka á þessum vanda af einhverjum ástæðum.
Meðan þetta heldur áfram að grassera, aukast líkurnar á því að hér geti orðið veruleg kreppa, eða það verði ekki kreppa. Menn hafa bara ekki hugmynd um það! Þetta er í raun alger rúlletta, hefur aldrei verið prófað annarsstaðar. Sem og að við búum í hagkerfi þar sem hraði, opnun fjármálamarkaða allan sólarhringinn gerir það að verkum að ríkisstjórnir, og ég tala nú ekki um í örríki líkt og hér, eru í raun valdalausar hvað varðar peningamálefni.
Þegar upp er staðið er þetta spurning um hvernig venjulegu fólki reiðir af í samfélaginu. Sæmilega menntuðu, í sæmilegum störfum með börn það sem fylgir ósköp venjulegu lífi. Án nokkur lúxuss né íburðar. Eins og búið er að koma samfélagi okkar fyrir í dag þá er farið að þrengja mikið að þessu fólki.
Taktu sem dæmi hjón, t.d. kennara nýkomna úr námi erlendis. Með 3 börn, þar af 2 í leikskóla. Eiga ekki húsnæði og í raun bara menntun sína.
Miðað við tekjumöguleika þeirra og þá valkosti sem þau hafa, þá er líklega eina lausn þeirra til að gera lifað sómasamlegu lífi að koma sér úr landi. T.d. til ESB lands eins og Danmerkur. Þar sem alla vega fólk á kost á því að fá mat og húsnæði fyrir svita síns starfs. Án þess að þurfa að vera á bankastjóralaunum eða eiga tugmilljóna eiginfé.
Ég hef nú hingað til frekar flokkast undir hægrimann sem hallast hefur að frjálshyggju, en ef maður skoðar dæmin og byrjar að reikna. Þá sér það hver sem vill að núverandi ástand leiðir ekki til góðs. Líkt og ég áður minntist á verður þetta líklega til þess að hér verður varanleg vinstristjórn eftir nokkur ár og Sjálfstæðisflokkurinn verður líkt og annarsstaðar í heiminum lítill hægriflokkur.
Sjá t.d. http://eyjan.is/silfuregils/2007/09/06/er-geir-a%c3%b0-meina-%c3%beetta/
Óskar Nafnleyndar (IP-tala skráð) 6.9.2007 kl. 11:26
Í ESB eru fleiri heimilislausir heldur en í Bandaríkjunum, eða 3 milljónir manna.
Já ESB gott fyrir lægri stétt... right!
Geiri (IP-tala skráð) 6.9.2007 kl. 11:35
Gaman að svona fólki sem treystir sér ekki til að koma fram undir nafni og bera ábyrgð á skrifum sínum eins og aðrir...
Hjörtur J. Guðmundsson, 6.9.2007 kl. 23:12
Er ekki lýðræði á Íslandi Ragnar? Er verið að neita fólki um eitthvað? Ef svo er, hvers vegna kýs fólkið þá ekki aðra yfir sig? Það hefur alla möguleika á því en gerir það greinilega ekki. Hvers vegna? Kannski vegna þess að það er heilt yfir séð sátt við þá lífskjarabyltingu sem átt hefur sér stað hér á landi á undanförnum árum undir forystu Sjálfstæðisflokksins og veit að kjör fólks hér á landi eru með því bezta sem gerist á Vesturlöndum.
Og varðandi auðlindirnar okkar. Þú vilt s.s. að þær fari undir sameiginleg yfirráð ríkja Evrópusambandsins? Athyglisvert. Ég held einhvern veginn að þú hafir ekki hugsað þetta mál til enda.
Hjörtur J. Guðmundsson, 8.9.2007 kl. 00:52
Lífskjarabylting! Tja! Jú að einhverjuleiti og þá sennilega að mestu leiti vegna áhrifa að utan þ.e. tengt ESB í gegnum EES samnninginn beint eða óbeint. Eitthvað sem Sjálfstæðisflokkurinn var lengi vel á móti en skipti svo um skoðun á siðustu stundu og eignar sér svo allan heiðurinn..hm....
Hvað varðar auðlindir "okkar" tja..þá er þegar búið að gefa stóran hluta af því sem einu sinni var sameign okkar allra, þ.e. fiskimiðin. Og nú er verið að undirbúa að gefa restina þ.e. orkuréttindi, vatnsréttindi. Þannig að frá mínum bæjardyrum þá skiptir engu hvort Geysir Green Energy...eða Magyr Energía á þetta. En ég væri til í lægri vexti, ódýrari bjór, og mannsæmdandin matarverð.
Ef þetta hefði verið hugsað í byrjun þ.e. að við hefðum hér Auðlindasjóð í ætt við það sem finna má í Alaska og svo að hluta til í Noregi (olía), ásamt dæmum frá Kanada þar sem unru 6 fetum er sameign. Þá færi maður kannski að hugsa um þetta á annan hátt. Þ.e. þá væri maður kannski ekki tilbúin að allt færi til Brussel.
En þetta gjafakvótarugl og nú með því að gefa vatns og jarðhitaréttindi líkgt og er að gerast nú. Er bara endanlega að tryggja það að jón og gunna vilja í ESB. Jú því að á endanum kjósa þau með veskinu.
Góða nótt ágætu landar
Óskar (IP-tala skráð) 8.9.2007 kl. 02:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.