Þriðjudagur, 4. september 2007
Ritfangaverslun ríkisins!
Á föstudag skrifaði ég pistil á þessa heimasíðu um málefni Íslandspósts hf. Þar gagnrýndi ég að ríkisfyrirtækið Íslandspóstur hf. hefði ákveðið að hefja samkeppni við einkaaðila á prentmarkaði og á sölumarkaði með skrifstofuvörur og fleira.
Pistillinn frá því á föstudag hefur vakið upp mikil viðbrögð. Sjálfur hef ég rætt við fjölmiðla og einkakaðilar sem hagsmuna eiga að gæta hafa einnig sagt skoðun sína.
Daginn sem ég skrifaði pistil um starfsemi Íslandspóst hf. birti fréttastofa Ríkissjónvarpsins frétt af opnun nýs pósthúss Íslandspósts hf. á Reyðarfirði, sem er eitt af fjölmörgum nýjum pósthúsum fyrirtækisins á landsbyggðinni. Í inngangi fréttarinnar kom fram að verslun með ritföng, aðgangur að netinu og önnur nýbreytni yrði í boði í þessum nýju pósthúsum.
Í viðtali við fréttamann sagði Hörður Jónsson, framkvæmdastjóri pósthúsasviðs Íslandspósts hf., að fyrirtækið skilgreindi sig sem flutningafyrirtæki og að nýju húsin væru hönnuð með það að markmiði að vera aðgengisleg fyrir vörur til flutninga inn og út úr húsunum.
Það er vel skiljanlegt, enda felst hlutverk fyrirtækisins fyrst og fremst í því að veita almenna og sérhæfða bréfa-, pakka- og sendingaþjónustu fyrir fyrirtæki og einstaklinga, eins og fram kemur á heimasíðu Íslandspósts hf.
Í ljósi þess að Íslandspóstur hf. er ríkisfyrirtæki væri óskandi að fyrirtækið myndi einbeita sér að því að veita þessa grunnþjónustu, en léti vera að vinna ný lönd á samkeppnismarkaði við einkaaðila, enda getur samkeppni ríkis og einkaaðila seint talist sanngjörn.
Því er hins vegar því miður ekki að heilsa í tilviki Íslandspósts hf.
Af myndum sem birtust í frétt Ríkissjónvarpsins frá því á föstudag má sjá að fyrirtækið býður nú til sölu ljósritunarpappír og geisladiska, en þar er einnig boðin til sölu hvers kyns ritföng og föndurvörur, ásamt öðru.
Aðspurður að því hvort það væri hlutverk þessa ríkisins að hefja samkeppni við ritfangaverslanir og þess háttar fyrirtæki sagði Hörður það hlutverk stjórnenda fyrirtækisins að reka fyrirtækið á sem hagkvæmastan hátt og fjölbreyttari rekstur sé hluti þess að það markmið náist. Í viðtali við Ríkissjónvarpsins sagði Hörður:
,,Auðvitað munu kannski einhverjir, hérna, ergja sig á því að við séum að fara út á nýtt svið, en þetta er bara okkar hlutverk. Við erum að reka fyrirtæki eins og hvert annað fyrirtæki í landinu."
Hér er á ferðinni yfirgripsmikill misskilningur hjá framkvæmdastjóra pósthúsasviðs Íslandspósts hf. og öðrum stjórnendum fyrirtækisins. Það er ekki hlutverk ríkisins að stunda verslun með ritföng og föndurvörur, ekki frekar en það er hlutverk ríkisins að standa í samkeppnisrekstri við einkaaðila á öðrum smásölumarkaði. Á grundvelli þessarar röksemdafærslu Harðar gæti ríkið allt eins ákveðið að hefja smásöluverslun með matvöru, fatnað, raftæki eða hvað eina sem mönnum kynni að detta í hug.
Sá alvarlegi misskilningur kemur einnig fram í viðtali Ríkissjónvarpsins við Hörð Jónsson að hann og aðrir forsvarsmenn Íslandspósts hf. séu að reka fyrirtæki eins og hvert annað fyrirtæki í landinu.
Íslandspóstur hf. er ekki eins og hvert annað fyrirtæki í landinu. Íslandspóstur hf. er ríkisfyrirtæki hefur einkaleyfi í lögum til þess að stunda sína kjarnastarfsemi sem felst í því að veita almenna og sérhæfða bréfa-, pakka- og sendingaþjónstu fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Sem ríkisfyrirtæki er staða Íslandspóst hf. ennfremur allt önnur en annarra fyrirtækja í landinu sem ekki hafa sjálfan ríkissjóð að bakhjarli.
Reyndar skín í gegn í viðtalinu við Hörð að hann er vel upplýstur um þessa hluti, enda viðurkennir hann að auðvitað muni einhverjir ergja sig á því að ríkisfyrirtækið Íslandspóstur hf. sé að færa starfsemi sína inn á önnur svið, sem ótengd eru kjarnastarfsemi fyrirtækisins.
Ég er einn þeirra sem ergi mig og vona að stjórnendur Íslandspósts hf. sjái á hvers kyns villigötum þeir eru.
Ég ergi mig líka á því að árið 2007 hafi verið stofnuð Ritfangaverslun ríkisins.
Lái mér hver sem vill!
Sigurður Kári.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:31 | Facebook
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
allib
-
almaogfreyja
-
andrigeir
-
audbergur
-
audunnh
-
abg
-
axelaxelsson
-
arniarna
-
aslaugfridriks
-
astamoller
-
baldher
-
baldvinjonsson
-
benediktae
-
bergrun
-
kaffi
-
bergurben
-
bjarnihardar
-
bjarnimax
-
bjorgvinr
-
sveifla
-
binnag
-
bryndisharalds
-
skordalsbrynja
-
brandarar
-
charliekart
-
dansige
-
doj
-
deiglan
-
doggpals
-
egillg
-
erla
-
erlendurorn
-
skotta1980
-
ea
-
fsfi
-
vidhorf
-
hressandi
-
gammurinn
-
gerdurpalma112
-
gisliivars
-
gisliblondal
-
gillimann
-
grettir
-
gudni-is
-
gummibraga
-
phoenix
-
gunnarbjorn
-
gussi
-
laugardalur
-
habbakriss
-
smali
-
haddi9001
-
hhbe
-
handsprengja
-
730bolungarvik
-
heimssyn
-
herdis
-
hildurhelgas
-
drum
-
hjaltisig
-
hlekkur
-
kolgrimur
-
hlodver
-
don
-
hvitiriddarinn
-
ingabesta
-
golli
-
ibb
-
bestiheimi
-
jakobk
-
fun
-
stjornun
-
skallinn
-
jonasegils
-
forsetinn
-
jonmagnusson
-
bassinn
-
jonsnae
-
julli
-
komment
-
karisol
-
kje
-
kjarrip
-
kjartanvido
-
kolbrunb
-
kristinrichter
-
kristjanb
-
kristjangudm
-
liljabolla
-
altice
-
maggaelin
-
gummiarnar
-
martasmarta
-
mal214
-
nielsfinsen
-
ottoe
-
olibjossi
-
obv
-
nielsen
-
skari
-
pkristbjornsson
-
jabbi
-
pbj
-
storibjor
-
iceland
-
pjeturstefans
-
raggibjarna
-
raggiraf
-
raggipalli
-
ragnar73
-
schmidt
-
bullarinn
-
salvor
-
fjola
-
sigbragason
-
vitaminid
-
joklamus
-
sv11
-
sjonsson
-
siggikaiser
-
sisi
-
siggisig
-
sigurgeirorri
-
mogga
-
sigurjonb
-
sms
-
sjalfstaedi
-
hvala
-
hvirfilbylur
-
stebbifr
-
eyverjar
-
styrmirh
-
summi
-
brv
-
sveinn-refur
-
stormsker
-
saethorhelgi
-
tidarandinn
-
daystar
-
valdimarjohannesson
-
valgerdurhalldorsdottir
-
vefritid
-
nytthugarfar
-
vibba
-
villagunn
-
va
-
villithor
-
xenon
-
thorbjorghelga
-
steinig
-
thorsteinnhelgi
-
thorasig
-
doddidoddi
-
thorolfursfinnsson
-
toddi
-
hugsun
-
ornsh
Athugasemdir
Heyr!
Hjörtur J. Guðmundsson, 4.9.2007 kl. 21:26
Það er ekki ofmælt, að þú hefur valið þér ömurlegt hlutskipti í lífinu Sigurður Kári og satt að segja sé ég eftir þeim skattpeningum sem fara í að borga sér laun. Ríkisrekin fyrirtæki eins og Sigurður Kári, Hannes Hólmsteinn og fleiri af því taginu eru sannarlega næsta óþörf rekstrardæmi.
Jóhannes Ragnarsson, 4.9.2007 kl. 22:19
Sigurður eg ergi mig mikið meira yfir einkasölu A.T.V.R. frá 0-2007/ Halli Gamli
Haraldur Haraldsson, 4.9.2007 kl. 22:40
Spurning er hvort það eigi ekki það sama við um Ríkisútvarpið ágæti Sigurður en þú mæltir fyrir því frumvarpi þegar það kom úr nefnd. Hvaða eðlismunur er á ritfangasölu póstsins og sýninga á Desperate Housewifes í sjónvarpinu? Geta einkaaðilar ekki með sama hætti séð um hvorttveggja?
Vandinn varðandi einkvavæðingu er að Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei mótað heildstæða stefnu í málinu og hefur gleymt þeirri mikilvægu stefnumörkun sem Birgir Kjaran fjallaði um varðandi einkavæðingu og ríkisrekstur í umfjöllun sinni um Sjálfstæðisstefnuna. Sennilega væri hollt fyrir þingflokk Sjálfstæðisflokksins að rifja upp þá hugmyndafræði sem þar var sett fram.
Jón Magnússon, 4.9.2007 kl. 22:44
Já hérna Sigurður minn!
Þér væri nær að draga í land, en þess í stað sekkurðu dýpra í fen eigin fáfræði hvað varðar hlutafélagið Íslandspóst, þú löglærður maðurinn, og gengur svo enn lengra með því að ráðast á æru ákveðins starfsmanns fyrirtækisins er þú nafngreinir í skrifum þínu. Nefnilega Hörð nokkurn framkvæmdastjóra.
Ásamt því að reyna að gera lítið úr honum og því sem eftir honum er haft. Hversu mikið sem þetta ergir þig þá er það samt sem áður deginum ljósara að um er að ræða hlutafélag. Er lýtur þeim lögum er snúa að slíkum félögum, þar er skýrt og skilmerkilega gerð grein fyrir því hvernig stjórnendur starfa í umboði stjórnar sem skipuð er að eigendum.
Gott og vel ríkið á hlutaféð. En það hjálpar ekki fyrir almennri sölu á hlutafénu að skamma Hörð og samstarfsmenn hans.
Þér væri nær að líta í eigin barm, skamma þig sjálfan, samflokksþingmenn þína og svo rölta yfir til Sollu og félaga og skamma þau líka. Því að þetta er fólkið sem getur og hefur vald til að breyta þessu er ergir þig svona glatt.
Með því að selja allt galleríið eða einfaldlega breyta um stjórn, sem í dag er pólitískt skipuð. Það eru réttu dyrnar sem þú þarft að gelta á.
Það er alla vega alveg sama hvað þú reynir að skamma Hörð og félaga. Það gerist ekkert nema að þú gerir lítið úr sjálfum þér og um leið opinberarðu almenna fákunnáttu þinni á málinu.
Væri það t.d. hagsmunir skattborgara þessa lands, er þú gegnir nú starfi fyrir og færð greitt ríkulega fyrir m.a. í formi lífeyrisréttinda er ekki standa til boða á almennum markaði, ef Hörður og hans samstarfsmenn lægjum með hendur í skauti að þinni eigin forskrift, brenndu eigin fé fyrirtækisins smátt og smátt upp því ekki mætti nýta þau tækifæri sem gæfust, þangað til fyrirtækið yrði einfaldlega gjaldþrota.
Myndir þú þá klappa þeim á öxlina og þakka þeim fyrir velunninn störf? Ég verð að leyfa mér að efa það stórlega. Ef Hörður getur fundið ábatasaman vettvang innan Póstsins til að selja matvörur eða fótanuddtæki þá ætla ég svo sannarlega að vona að hann geri það ef það er einhver gróði fólgin í því fyrir fyrirtækið. Hlutafélagið okkar sem ég vona sannarlega að vaxi og dafni vel þangað til það verður að lokum selt og þá vonandi fyrir ríkulega fjármuni sem má nýta til góðra verka.
Hvað verður annars næst, mega Hörður og félagar ekki flytja pakka af því að Eimskip og Samskipt ásamt fleirum bjóða þá þjónustu? Á kannski bara að loka búllunni og senda starfsfólkið heim í launað leyfi þangað til eigið féð er búið?
Ég veit ekki hvort þú hefur dottið á milli tímavídda þegar þú tókst að rita þessar skemmtigreinar þínar um okkar annars ágætu póstþjónustu. Því íhlutun sú er þú ert að leggja til sem alþingismaður gagnvart hlutafélagi á samkeppnismarkaði er í ætt við það sem tíðkaðist hér á landi um miðja síðustu öld, þ.e. bein pólitísk afskipti af atvinnulífinu. Ekki hefur það hingað til verið talið hafa verið samfélagi okkar til góðs, heldur þvert á móti.
Ennfremur sló mig sú vankunnátta þín er felst í eftirfarandi ummælum þínum;
“...Sem ríkisfyrirtæki er staða Íslandspóst hf. ennfremur allt önnur en annarra fyrirtækja í landinu sem ekki hafa sjálfan ríkissjóð að bakhjarli...”
Ríkið hefur ekki í mjög langan tíma veitt ríkisábyrgðir, hvað þá gagnvart hlutafélögum þrátt fyrir að þau séu í eigu þess. Einfaldlega vegna þess að það væri andstætt lögum og reglum er gilda hér og annarsstaðar í Evrópu. Því nýtur þetta hlutafélag þess ekki á neinn hátt að vera með ríkið sem bakhjarl.
Ef þig langar að ergja þig yfir þessu máli, gerðu það þá innan veggja alþingis, á þingflokksfundum og gagnvart öðrum þeim er við austurvöll dvelja og ákveða hvenær eignir ríkisins eru seldar. Láttu Hörð og félaga í friði, leyfðu þeim að vinna vinnu sína er felst í því að gæta hagsmuna hluthafa (skattborgara þessa lands), sem felst í því að ávaxta eigið fé fyrirtækisins eftir bestu getu í vonandi sem mestri samkeppni. Og um leið auka möguleika fyritækisins að greiða sem hæst laun til allra sinna starfsmanna.
Ekki að leggja til það glapræði að starfsmenn Póstsins sitji með hendur í skauti. Þá ertu farin að boða örgustu vinstri stefnu á sviði aukinna pólitískra ríkisafskipta, sem gerir þig að "komma í frjálshyggjugæru" :o)
Annars er alltaf kostulegt við ykkur þessa blessaða “frjálshyggjupúka”, hvað ykkur hættir til að starfa oftast hjá ríkinu, gaspra og karpa fram og aftur, í stað þess að gera eitthvað í málinu, Tala minna gera meira!
Ef þetta ákveðna hlutafélag er ykkur svona mikill þyrnir í augum, seljið það bara, en það fer ekki þó þó það verði selt, Eignarhaldið verður bara annarsstaðar, punktur. En það gerist ekki í fjölmiðlum, hvað þá með því að skamma starfsmenn hlutafélagsins og það á opinberum vettvangi.
Annars virðist rökstuðningur þinn og félaga þinna vera mest í ætt við trúarlega umræðu, þ.e. engin mótrök duga, þrátt fyrir að liggja fyrir svart á hvítu. Fyrir ykkur er þetta bara svona “af því bara”. Allt sem ríkið gerir er vont og ekkert breytir þeirri skoðun ykkar. En svo eruð þið oftast á framfæri ríkisins sjálfir!
Þetta flokkast eiginlega undir tvískinnung af versta tagi!
Annars eiga öll dýrin í skóginu að vera vinir
Góða nótt
Annars eru hér nokkur skondin skrif af vefnum um sama málefni.
http://www.visir.is/apps/pbcs.dll/article?AID=/20070904/FRETTIR01/70904104
http://www.visir.is/article/20070903/FRETTIR01/70903105
http://sigurdurkari.blog.is/blog/sigurdurkari/entry/299570/#comments
Gottfreður (IP-tala skráð) 5.9.2007 kl. 01:14
Mér finnst nú ekkert að því að geta keypt umslag á pósthúsinu. Gerði það um daginn á Garðatorgi, hefði líklega annars þurft að aka til Hafnarfjarðar eða Kópavogs eftir umslagi af þeirri gerð sem mig vantaði. En auðvitað er það rétt að Íslandspóstur á ekki að reka ritfangaverslanir, en þótt þeir selji umbúðir utan um það sem þeir eiga að dreifa ætti það ekki að vera stórmál.
Verra er hvað Íslandspóstur stendur sig illa í póstdreifingu. Í síðustu viku var enginn póstur borinn út í tvo daga í hluta Garðabæjar. Það kom sér illa og er grafalvarlegt mál og reginhneyksli, liggur mér við að segja. Það er lítið gagn í því að fá mánudegi boð um að vera viðstaddur atburð laugardaginn á undan. Það tók bréfið frá miðvikudegi til mánudags að fara frá Reykjavík í Garðabæinn.
Í öðrum löndum væru svona vinnusvik litin alvarlegum augum.
Dreifing á pósti lýtur og á að lúta öðrum lögmálum en dreifing dagblaða.
Eiður Guðnason (IP-tala skráð) 5.9.2007 kl. 08:43
Gæti varla verið meira sammála þér. Ríkið á ekki að vera í samkeppni við einkaaðila. Það er útgagnspunkturinn. Þér virðist reyndar hafa tekist að stórmóðga menn hér sem telja það mikilsvert innlegg í umræðu að vera með skæting um eitthvað sem skiptir ekki máli.
Held að þessi ágætu tilsvarendur stóryrtir ættu að reyna að gera sér í hugarlund hvernig er að standa í samkeppni við ríkið. Það er vonlaust enda lítur ríkisrekstur engum eðlilegum lögmálum markaðar eins og fjölmörg dæmi eru um, sum nýleg.
Haltu þínu striki og bættu frekar í en hitt. Því af nógu er að taka í ríkisrekstrinum.
Rögnvaldur Hreiðarsson, 5.9.2007 kl. 12:01
Æ, ég veit það ekki. Ef þetta lækkar verð, hvað eru menn þá að kvarta? Viltu fá hærra verð bara í nafni "einka-"einhvers bara til að einhver innflytjandi fái 1% meiri arð? Einhverjum sem er að kaupa blýant er nú örugglega slétt sama.
Svo má alveg eins ræða þetta mál í útgangspunktum hvernig stórir hringar fara inn á svæði og knésetja einkareknar búðir um allt land. Þar er enginn eðlismunur hvað viðkemur einkarekstri á stöðunum. Af hverju seturðu það ekki á oddinn? Það snýst um fleira en peninga.
Íslandspóstur á fyrst og fremst að gera það sem bætir þjónustu og láta þessi markaðshyggjutrúarbrögð lönd og leið. Þjónustan við kúnnan kemur fyrst, það er útgangspunkturinn, ekki hvort ríkið eigi að vera í samkeppni við einkaaðila, enda eru það loðnar skilgreiningar og alls ekkert rétt og mikill heilaþvottur að ríkið sé alltaf svona lélegt. Það er jú tólið sem þú situr í, Sigurður. Ef ríkið er svona vont, þá ertu sjálfur... tjah ætla ekki að orðlengja það. Allavega held ég að starfsmenn fyrirtækis sem mæla gegn þess athöfnum þess séu oft bara reknir.
Spurning hvort við þurfum ekki alþingismenn sem segja að ríkisapparöt séu góð.
Annars hef ég meiri áhuga á að heyra mister alþingismann mæla gegn fákeppni og einokunina sem er að sjást um allt, fiskverslanir að komast undir einn hatt, lyfjaverslanir etc. Mín reynsla hér í USA er að svona einokunarhringar eru frábærir fyrstu árin en það er bara lakkrís á öngulinn. Svo er togað í spottann og dýrið blóðgað. Þ.e. kúnninn.
Ef íslandspóstur verður einokari, þá er að taka á því ef að því kemur. En fyrst og fremst er um bætta þjónustu að ræða, hvernig sem það er gert.
Svo má líka ræða mikilvægari málefni, t.a.m. þennan fjölda útigangsmanna, aukinn hórdóm (sölu á konum), meðferðir og fyrirbyggjandi aðgerðir gegn eiturlyfjasýki, misgóðir skólar og þar fram eftir götunum. Mér svo til sama um umslaga- og blýantsmarkaðsfræði og efast um að það sé í forgangi hjá mönnum sem eiga að tala máli hins almenna íslendings.
Annars óska ég þér alls hins besta.
Ólafur
Ólafur Þórðarson, 5.9.2007 kl. 13:21
Pósturinn í Bandaríkjunum er með svipaða ritfangasölu og Íslandspóstur (www.usps.gov). Deutsche Post líka (www.post.de). Australia Post líka (http://www.auspost.com.au).
Ian (IP-tala skráð) 5.9.2007 kl. 16:24
Nokkuð kostuleg umræða, og ekki síst hve illa Sigurður Kári virðist vera að sér í þessum málum öllum saman, og láta lítið í sér heyra annað en að varpa fram einhverjum "frjálshyggjubókstafstrúarlegum" klysjum.
En ef menn setjast yfir þessi mál svona fordómalaust og án málalenginga þá er um nokkrar leiðir að velja Sigurður. Hins vegar má sérstaklega benda á þá staðreynd að engin þessara leiða er fær á þann hátt að angra starfsmenn Íslandspósts hf. Þeir ráða engu, þeir vinna bára sína vinnu eins og fyrir þá er lagt af pólitískt skipaðri stjórn. Sem þú og vinnufélagar þínir berið svo ábyrgð á, fyrir hönd eigenda.
I) Óbreytt ástand Einkaleyfi það sem gildir um bréf undir 50gr. Fellur úr gildi 2009-11 í síðasta lagi. Og þá er um að ræða fullkomna samkeppni á þessum markaði. Og engar flækjur við að selja þessi hlutabréf sem þið Sjálfstæðiskrata ríkisstjórn fer með umráð yfir. Spurning hins vegar hvað á að gera við pakkið út á landi sem fær send bréf, hver ætlar að sinna þeim?
II) Ríkisvæðing - þar sem hlutafélagið Íslandspóstur hf. er lagður niður, en þess í stað verður til ríkisstofnun (talandi um ríkisvæðingu!). Sem hefur það að markmiði að fara með einkaleyfi það er Ríkið hefur til dreifingar á bréfum undir 50gr þangað til. Allt sem snýr að öðru er selt.
IIb) Af-ríkisvæðing til viðbótar við II er einkaleyfið bara fellt niður einhliða og hver sem er getur dreift hverju sem er hvar sem er.
III) Skipta fyrirtækinu upp og selja allt sem flokkast undir samkeppnishluta
IV) Selja allt strax - Hér myndi eignarhald hlutafjár vera það eina sem breyttist. En hvað ætti að gera varðandi einkaleyfi sem fylgja væntanlega töluverðar skyldur að auki.
Samantekið eru þær leiðir hér að ofan eingöngu færar með aðkomu alþingis í gegnum lagabreytingu.
Stjórnendur Íslandspósts hf. geta með engu móti þrátt fyrir að þeir gengju allir í "frjálshyggjusöfnuð" Sigurðar Kára, frelsuðust að viðbættum miklum og einbeittum vilja, breytt neinu nema að tryggja rekstur hlutafélagsin með þeim tólum og tækjum sem þeim er úthlutað, líkt og stjórnendum annara hlutafélaga hér á landi. Meira að segja með sölu blýanta og mjólkurvara ef þess væri þörf.
Sigurður! farðu að vinna, á réttum stöðum. Og byrjaðu að hreinsa til í eigin garði, þ.e. eigin þingflokki. Áður en þú skammar starfsmenn hlutafélags út í bæ að ósekju.
Líta sér nær þó svo um verðugt málefni sé að ræða ;o)
Hlakka til að sjá hvaða útspil kemur frá þér næst og hvernig þér á eftir að takast að snúa þingmönnum á þitt band. Svo selja megi "allan pakkann".
Þú ert vonandi ekki bara ana fram í fjölmiðlum til að vekja athygli á sjálfum þér?
Bestu kveðjur.
Óskar
Óskar Nafnleyndar (IP-tala skráð) 5.9.2007 kl. 17:46
Hahaha!
Er nú Sigurður Kári búin að kalla út stuttbuxnadeildina eins og hún leggur sig. Beitandi sömu rökþrotum um Póstinn og Sigurður gerði áður?
SBR http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1289895
Hver á að sjá um Póstþjónustu á landsbyggðinni í einkavæddu umhverfi? Eimskip? Samskip? Ekki er að sjá að þeir hafi mikinn áhuga né tilfæringar á slíku þrátt fyrir að meginhluti markaðarins sé í fullri samkeppni og öllum heimill aðgangur!
Lesið heima fyrst, kynnið ykkur málin með Sigurði vini ykkar áður en rokið er í blöðin. Hugsa fyrst, Tala svo :o)
Kv
Óskar
Óskar Nafnleyndar (IP-tala skráð) 6.9.2007 kl. 15:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.