Frank Caliendo

Ég hef alltaf haft gaman að grínistum sem eru með uppistand sem svo er kallað.  Ég hef ekki síður gaman að góðum eftirhermum.  Við Íslendingar eigum margar slíkar, en í Bandaríkjunum eru til menn sem eru alveg óhemju fyndnir og magnaðar eftirhermur.

Einn þeirra er bandaríski grínarinn Frank Caliendo.  Hann er alveg hreint frábær eftirherma og leikur ýmsar heimsþekktar persónur ótrúlega vel.

Í stuttu myndbroti, sem finna má hér , fer Frank á miklum kostum þegar hann leikur menn á borð við George Bush, Bill Clinton, Seinfeld, George og Kramer, Al Pacino, Robert de Niro og fleiri.

Sjón er sögu ríkari.

Sigurður Kári.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fulltrúi fólksins

Algjör SNILLD!

Fulltrúi fólksins, 4.9.2007 kl. 10:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband