Föstudagur, 31. ágúst 2007
Íslandspóstur hf. á gráu svæði

Þó svo að Íslandspóstur hf. sé hlutafélag þá er félagið að öllu leyti í eigu ríkisins og ber því nafnið ,,ríkisfyrirtæki" með rentu. Sem slíkt á það ekki, að mínu mati, að útvíkka starfsemi sína þannig að það þrengi að starfsemi einkarekinna fyrirtækja sem starfa á sama vettvangi. Í þessu tilviki met ég það svo að Íslandspóstur hf. sé á afar gráu svæði.
Ekki er langt síðan Íslandspóstur hf. keypti prentsmiðjuna Samskipti af einkaaðilum. Með þeim kaupum blandaði fyrirtækið sér í samkeppni á markaði sem einkafyrirtæki hafa séð um að þjónusta. Kaup Íslandspósts hf. á Samskiptum orkuðu að mínu mati tvímælis og þá skoðun mína lét ég opinberlega í ljós í kjölfarið.
Eins og alþjóð veit reka einkaaðilar á Íslandi fyrirtæki sem annast sölu á ,,skrifstofuvörum, pappír, geisladiskum, kortum og öðrum svipuðum vörum." Nú er reyndar óljóst af frétt Viðskiptablaðs Morgunblaðsins hvaða vörur forsvarsmenn Íslandspósts hf. telja að teljist til skrifstofuvara. Undir það hugtak geta fallið allt frá strokleðra til skrifborða. Samkvæmt mínum heimildum ætlar Íslandspóstur hf. sér því miður stóra hluti á þessum markaði.
Ekki trúi ég því að félagar mínir í þingflokki Sjálfstæðiflokksins séu sérstaklega hrifnir af því að ríkisfyrirtækið Íslandspóstur hf. hefji nú mikla markaðssókn á þessu sviði gagnvart einkaaðilum á markaði, fyrirtækjum sem um áratugaskeið hafa haft með höndum af þessu tagi. Bæði ganga þau gegn þeim grunvallarsjónarmiðum sem við sjálfstæðismenn fylgjum hvað varðar þátttöku ríkisins á samkeppnismarkaði, en til viðbótar kunna framtíðaráform Íslandspósts hf. að koma í veg fyrir að einkafyrirtæki sem á þessum markaði starfa sæki inn á nýja markaði, einkum á landsbyggðinni.
Það væri miður ef sú yrði raunin.
Á síðustu mánuðum hefur átt sér stað nokkur umræða um einkavæðingu ríkisfyrirtækja. Hefur þar helst verið fjallað um mögulega einkavæðingu orkufyrirtækjanna. Um einkavæðingu þeirra hafa verið afar skiptar skoðanir, sem eðlilegt er.Ég á hins vegar erfitt með að sjá að einhver geti verið á móti því að Íslandspóstur hf. verði einkavæddur og mun berjast fyrir því að það verði gert fyrr en síðar.Sigurður Kári.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
allib
-
almaogfreyja
-
andrigeir
-
audbergur
-
audunnh
-
abg
-
axelaxelsson
-
arniarna
-
aslaugfridriks
-
astamoller
-
baldher
-
baldvinjonsson
-
benediktae
-
bergrun
-
kaffi
-
bergurben
-
bjarnihardar
-
bjarnimax
-
bjorgvinr
-
sveifla
-
binnag
-
bryndisharalds
-
skordalsbrynja
-
brandarar
-
charliekart
-
dansige
-
doj
-
deiglan
-
doggpals
-
egillg
-
erla
-
erlendurorn
-
skotta1980
-
ea
-
fsfi
-
vidhorf
-
hressandi
-
gammurinn
-
gerdurpalma112
-
gisliivars
-
gisliblondal
-
gillimann
-
grettir
-
gudni-is
-
gummibraga
-
phoenix
-
gunnarbjorn
-
gussi
-
laugardalur
-
habbakriss
-
smali
-
haddi9001
-
hhbe
-
handsprengja
-
730bolungarvik
-
heimssyn
-
herdis
-
hildurhelgas
-
drum
-
hjaltisig
-
hlekkur
-
kolgrimur
-
hlodver
-
don
-
hvitiriddarinn
-
ingabesta
-
golli
-
ibb
-
bestiheimi
-
jakobk
-
fun
-
stjornun
-
skallinn
-
jonasegils
-
forsetinn
-
jonmagnusson
-
bassinn
-
jonsnae
-
julli
-
komment
-
karisol
-
kje
-
kjarrip
-
kjartanvido
-
kolbrunb
-
kristinrichter
-
kristjanb
-
kristjangudm
-
liljabolla
-
altice
-
maggaelin
-
gummiarnar
-
martasmarta
-
mal214
-
nielsfinsen
-
ottoe
-
olibjossi
-
obv
-
nielsen
-
skari
-
pkristbjornsson
-
jabbi
-
pbj
-
storibjor
-
iceland
-
pjeturstefans
-
raggibjarna
-
raggiraf
-
raggipalli
-
ragnar73
-
schmidt
-
bullarinn
-
salvor
-
fjola
-
sigbragason
-
vitaminid
-
joklamus
-
sv11
-
sjonsson
-
siggikaiser
-
sisi
-
siggisig
-
sigurgeirorri
-
mogga
-
sigurjonb
-
sms
-
sjalfstaedi
-
hvala
-
hvirfilbylur
-
stebbifr
-
eyverjar
-
styrmirh
-
summi
-
brv
-
sveinn-refur
-
stormsker
-
saethorhelgi
-
tidarandinn
-
daystar
-
valdimarjohannesson
-
valgerdurhalldorsdottir
-
vefritid
-
nytthugarfar
-
vibba
-
villagunn
-
va
-
villithor
-
xenon
-
thorbjorghelga
-
steinig
-
thorsteinnhelgi
-
thorasig
-
doddidoddi
-
thorolfursfinnsson
-
toddi
-
hugsun
-
ornsh
Athugasemdir
Spurning er hinsvegar, mun einkavæddur Íslandspóstur halda uppi nauðsynlegri þjónustu við alla íbúa þjóðarinnar? Verður ekki skorin niður þjónustan við dreifaðri byggðir?
Baldvin Esra Einarsson (IP-tala skráð) 31.8.2007 kl. 13:10
dreifðari, fyrirgefiði mér
Baldvin Esra Einarsson (IP-tala skráð) 31.8.2007 kl. 13:11
Það hlýtur að vera hægt að treysta einkaaðilum fyrir því að dreifa pósti. Gamla hugsunin um að það sé best að ríkið sinni einu og öllu er löngu úreld.
Björn (IP-tala skráð) 31.8.2007 kl. 14:45
Sorglegt að þingmenn skuli vera svona illa upplýstir og þröngsýnir. Íslandspóstur var gerður að hlutafélagi meðal annars til að aðlaga það markaði hvað varðaði starfsmenn og samkeppni. Fyrirtækið er þegar 70 - 80% í samkeppni við ýmsa. Bögglar, markpóstur, fjölpóstur, bréf þyngri en 50 grömm og margt fleira er í samkeppni og hún er hörð. Einkaréttur af bréfum er að hverfa og þá er fyrirtækið komið í 100 % samkeppni.
Það var Sjálfstæðisflokkurinn sem stóð fyrir þessari hf.unn og rökstuddi hana með nákvæmlega því sem er að gerast. Íslandspóstur er fyrirtæki í samkeppni á hörðum markaði.
Ég legg til að þú kynnir þér málin betur áður en þú gapir opinberlega.
Jón Ingi Cæsarsson, 31.8.2007 kl. 18:53
Sigurðir Kári
Auðvitað á ríkið að keppa á samkeppnismarkaði og ekkert endilega á jafnréttis grundvelli, ástæðan er að einkaframtakið hefur sýnt að það snýst einkum um græðgi og að troða á venjulegu fólki. Það sem vantar hér í dag er aukin þjóðnýting og að því sem þigmenn hafið verið að stela frá þjóðinni verði skilað.
Einar Þór Strand, 31.8.2007 kl. 20:29
Eiga ritfangaverslanir á landsbyggðinni ekki nægilega erfitt uppdráttar þótt þær fái ekki samkeppni frá hlutafélagi í ríkiseigu? Var mjög hugsi yfir þessari frétt og tek heilshugar undir þessar hugleiðingar.
Dögg Pálsdóttir, 31.8.2007 kl. 20:51
Kostulegt að skamma hlutafélag sem skipað er stjórnendum sem falið hefur verið af eigendum hlutafjár að fara sem best með hlutaféð eftir þeim lögum reglum sem gilda.
Það að ríkið sé svo 100% eigandi hlutafjárins ásamt því að hafa falið þessu fyrirtæki að fylgja eftir einkaleyfi sem fyrirtækið hefur undir höndum af sögulegum ástæðum á bréfum undir 50 gr og það til ársins 2009. En réttindum þessum fylgir kostnaðarsöm skylda, skylda til að halda uppi s.k. alþjónustu um land allt. Burtséð frá því hvort þjónustan ber sig eða ekki.
Forstjóri umrædds fyrirtækis hefur m.a. nýlega tjáð sig á opinberum vettvangi hvað þetta ákveðna málefni varðar. Þ.e. óskað eftir því að losna frá þessu einkaleyfi og lýst yfir vilja yfir að fá að keppa á markaði að fullu.
Í raun ættir þú að líta þér nær lögfræðimenntaði hægrimaður, sem hefur lykilaðstöðu til að hafa áhrif á þessi málefni og þá ekki í gegnum fjölmiðla. Hættu að agnúast úr í fólk sem er að vinna vinnuna sína í góðri trú (stjórnendur Íslandspósts). Það er alþingis, þar sem þú situr, að breyta þessu.
A) Selja allt heila klabbið og það sem fyrst og fella niður einkaleyfið er lýtur í raun Evrópskri tilskipun. En hvað með póstdreifingarsvæði sem ekki bera sig, hver á að borga fyrir það?
B) Banna stjórnendum Íslandspósts að vinna sína vinnu því þeir mega sumt en annað ekki (hver á að taka þá geðþóttaákvörðun?) og koma með því í veg fyrir að þeir nýti fjárfestingar hlutafélagsins með eðlilegum hætti. Með því er tryggt að eignir hlutafélagsins brenna smátt og smátt upp. En á ábyrgð hvers þá? Alþingis? Það má ekki gleyma því að meðan menn eins og þú Sigurður, rakkið niður það sem starfsfólk Íslandspósts er að gera með hagsmuni fyrirtækisins í huga og um leið hagsmuni eigandans(borgara þessa lands). Þá ertu að vinna gegn hagsmunum þeirra er kosið hafa þig til alþingis. Kosið þig til að gæta hagsmuna kjósenda, skattborgara. Með því að rakka niður fyrirtækið eða hamla starfsemi þessa hlutafélags er það tryggt. Með því að selja það og losa úr viðjum ríkisafskipta, einkaleyfahamla og alskyldudreifingar má mögulega hámarka hag eigendanna. Málið er að því lengur sem menn bíða eða hamla starsemina m.a. með svona áróðri eins og frá þér, því meiri líkur eru á því að hagur fyrirtækisins og um leið umbjóðenda þinni bíði hnekki/skaða.
Annars er vandamál alþingis að þar eru of margir lögfræðingar þar , og þeir kunna sjaldnast að telja, bara blaðra....;o)
Hættið að blaðra um þetta, tíma aðgera er runnin upp, seljið draslið.
Gottfreður (IP-tala skráð) 1.9.2007 kl. 02:25
Hér á Reyðarfirði var opnað nýtt pósthús opnaði á Reyðarfirði í gær (föstud) sem ég bloggaði um HÉR. Ég fagnaði nú einmitt smásölu þeirra á ritföngum, einfaldlega vegna þess að einkaaðilar hér eru ekki að standa sig nægilega vel á þeim markaði. En í prinsippinu er ég samt sammála greinarhöfundi.
Gunnar Th. Gunnarsson, 1.9.2007 kl. 05:11
Hvaða ritfangaverslanir á landsbyggðinni? Ég sé ekki að Office 1, Penninn og Oddi séu að berjast um að komast að á Húsavík, Borgarnesi, Sauðárkróki, Höfn, Hvolsvelli, Patreksfirði og Blönduósi.
Reyndar eru þessar verslanir í stærstu kjörnum hvers landshluta (Akureyri, Ísafirði, Egilsstöðum, Selfossi, Akranesi og Vestmannaeyjum) en öðrum svæðum þarf að sinna og Pósturinn er tilvalin til þess. Einfaldlega vegna þess að hann þarf að vera þarna til að sinna skyldum sínum.
Baldvin Esra Einarsson (IP-tala skráð) 1.9.2007 kl. 18:06
Ég sé að Dögg er trú uppruna sínum og er í reynd að biðja um gömlu kaupfélögin sem seldu fólki það þeim sýndist á verði sem þeir ákváðu.
Jón Ingi Cæsarsson, 1.9.2007 kl. 19:32
Pósturinn í Bandaríkjunum er með nákvæmlega sams konar þjónustu. Hann er 100% í eigu ríkisins.
Ian (IP-tala skráð) 2.9.2007 kl. 08:04
Í eðli sínu og í raun er póstþjónusta samfélgasþjónusta. Ef gefum okkur einfalt dæmi af algerri samkeppni á þessum markaði án afskipta. Hvað gerist þá? Jú það nennir engin í að standa póstþjónustu á dreifðari og fámennari stöðum á landinu af því að það eru engir peningar í því. En hvaða gagn er í póstþjónustu sem er bara á höfuðborgarsvæðinu, en þú getur ekki sent bréf til Grímsstaða á fjöllum af því engin vill þjónustua það svæði! Sama lögmál á í raun um póstsamskipti á heimsvísu. Það er einfaldlega svo að sumsstaðar er feitari gölt að flá, en svo inn á milli er akkúrat ekkert út úr þessu að hafa. Ef skoðað er hvað póstþjónustur eru að gera í heiminum þá er það nokkuð einfalt. "Businessinn" er að breytast úr pappír yfir í rafrænt, þó ekki eins hratt og spár gerðu eitt sinn ráð fyrir. Og því koma tekjur af þessu til með að hraðminnka á komandi árum. Til þess m.a. að bregðast við þessu þurfa stjórnendur þessa hlutafélaga að leita allra leiða til að auka tekjur m.a. til að halda uppi póstþjónustu í samfélaginu til lengdar. Þetta er ekki einfalt mál og líkt og með svo margt þá verða aldrei allir ánægðir þegar breytignar verða. Í kringum okkur hefur póstþjónustan verið mismikið einkavædd. t.d. 25% í Danmörku og 100% í þýskalandi. Hins vegar eru menn ennþá t.d. í Þýskalandi að glíma við samkeppni á "óréttmætum" grundvelli. Þar sem fyrirtæki koma inn og fleyta af rjómann en sinna ekki óhagkvæmari jaðarsvæðum... Hér á landi kemur þetta eilífa jarm hægri manna í þá veru að ríkisyfirtæki eigi ekki að standa í samkeppni við einkafyrirtæki reglulega upp. Íslandspóstur er hlutafélag og fólkið þar hugsar út frá því, ekki hver er eigandinn hverju sinni það vinnur vinnu sína eftir sinni bestu getu til að hámarka þann arð sem hluthafinn getur mögulega fengið líkt og gildir með öll hlutafélög. Lausnin er að selja félagið sem fyrst en um leið að tryggja að dreifing á jaðarsvæðum t.d. með útboðsfyrirkomulagi þar sem ljóst er að dreifing mun aldrei bera sig og aldrei mun verða samkeppni. Einkaleyfi sem í gildi um póstdreifingu er núna er líklega mun takmarkandi á rekstur fyrirtækisins en ekki og mun að lokum falla úr gildi 2009 eða 2011. Þangað til að búið er að selja fyrirtækið er beinlínis út í hött að reyna að tala það niður út frá "ríkisfyrirtækjasjónarmiðum". Eða eiga stjórnendurnir bara að sitja með hendur í skauti og láta eigið fé brenna upp, af því að þeir gætu mögulega verið að keppa við einhvern? Hætta allri starfsemi sem ekki er háð einkaleyfi (bréf undir 50gr) s.s. bögglum og annarri þjónustu? Af hverju eru ekki fjölmörg fyrirtæki að berjast um þennan markað?
En og aftur hægrimenn, hættið þessu blaðri og gerið eitthvað s.s. berjast opinberlega fyrir sölu fyrirtækisins. Ekki rakka niður fyrirtækið og fólkið innan þess sem er bara að vinna sína vinnu og tryggja hagsmuni hluthafa. Sem jú eru skattborgarar þessa lands.
Gottfredur (IP-tala skráð) 2.9.2007 kl. 11:31
Það er allt í lagi að hafa það markmið að gera rekstur haghvæmari og einkavæðing er möguleg leið í sumum tilfellum. En það gengur út fyrir alla skynsemi að halda að það eigi alltaf við í öllum tilfellum. Það er einfeldningslegt viðhorf sem hrjáir því miður alltof marga.
Baldvin Esra Einarsson (IP-tala skráð) 2.9.2007 kl. 18:46
Ég er alveg hjartanlega sammála Sigurði Kára með þetta mál að mörgu leiti. Mér finnst með öllu ótækt að ríkið sé í samkeppni á þessum mörkuðum svo sem prent -og skriftstofuvörum. Hinsvegar finnst mér alveg rétt að póstþjónusta sem slík á að vera til staðar og öllum aðgengileg á verði sem hægt er að treysta á.
Það er hinsvegar skrýtið að ríkisfyrirtæki skuli kaupa upp fyrirtæki á markaði til að bæta við rekstur sinn sem fyrir er. Besta dæmið eru kaup Póstsins á prentfyrirtækinu Samskiptum sem er með öllu ósklyldur rekstur. Fyrir nokkru síðan var ríksiprentsmiðjan Gutenberg seld með þeim rökum að ríkið ætti ekki að vera í rekstri og samkeppni á prentmarkaðnum. Svo hefur hið opinbera bara ekkert að gera á öðrum mörkuðum heldur en sem líta að grunnþjónustu okkar svo sem heilbrigðisþjónustu, skólamál og jú, jafnvel póst -og samskiptaþjónustu.
Hlynur Guðlaugsson (IP-tala skráð) 3.9.2007 kl. 19:10
Ágætu lesendur, hæstvirtur alþingismaður Sigurður Kári og ekki síst fréttamenn Stöðvar2.
Í kjölfar umfjöllunar í kvöldfréttatíma Stöðvar2 þann 3 september um Ríkisfyrirtækið Íslandspóst. Vil ég sem starfsmaður Íslandspósts hf. Eindregið mótmæla þeim einhliða fréttaflutningi sem viðhafður er af hálfu fréttastofu Stöðvar2 af málinu. Þar sem ekki virðist verið haft fyrir því að kynna sér málavexti til hlítar og ná fram sanngjarnri og raunsannri yfirsýn.Ég reyni líkt og hátt í 1300 aðrir samstarfsmenn mínir að sinna starfi mínu eftir bestu getu dag frá degi og í samræmi við reglur þær sem gilda um hlutafélög og starfssemi þeirra, ásamt stefnu og markmiðum yfirstjórnar fyrirtækisins sem starfar í umboði eigenda, í gegnum stjórn. Það að eigandinn sé þessa stundina Ríkissjóður á ekki að vera mergur málsins. Nú hefur hæstvirtur alþingismaðurinn Sigurður Kári gagnrýnt það að fyrirtækið sé einokunarfyrirtæki, sem er að hluta til rétt. En þó á mjög svo afmörkuðu sviði bréfaflutninga. Sviði sem forstjóri Íslandspósts hf. lýsti nýverið yfir í blaðaviðtali að væri óskandi að losna undan sem fyrst.Þessu afmarkaða sviði fylgja að vísu einokunarréttindi ásamt ríku eftirliti af hálfu Póst- og Fjarskiptastofnunar en um leið kostnaðarsöm aldreifingarskylda sem m.a. tryggir póstdreifingu um land allt burtséð frá því hvort einstaka svæði eru arðbær eða ekki. Allt samfélagi okkar til heilla.Ef við lítum hinsvegar á skyldur forsvarsmanna og stjórnenda hlutafélaga almennt, þá er eitt af meginhlutverkum þeirra að ávaxta fjármuni eigenda er leggja til hlutafé. Allt eftir leikreglum þeim sem settar eru hverju sinni, lögum samkvæmt. Þessu er ekki öðruvísi farið hjá hlutafélaginu Íslandspósti.Hér er líkt og í öðrum vestrænum samfélögum sem sett lög sem þessi, "rammi" fyrir atvinnulífið til að vinna innan m.a. til að tryggja samkeppni og ákveðið sjálfstæði fyrirtækja gagnvart tilviljanakenndri íhlutun einstakra hluthafa, nema þá í gegnum skipun og virkni stjórnar gagnvart framkvæmdastjórn.Því er spurn hvernig í ósköpunum eigi að reka hlutafélag ef opinberir aðilar s.s. þingmenn fara reglulega að skipta sér af rekstri þess á grundvelli þess hvernig hluthafahópurinn sé samsettur hverju sinni? Væri ekki nær að hætta að lítillækka okkur starfsmenn Íslandspósts hf. Með sífelldum aðdróttunum, leyfa okkur frekar að sinna okkar starfi sem m.a. er að tryggja sem besta ávöxtun hlutafjár eigendanna, sem þegar upp er staðið, eru íslenskir skattborgarar. Hvers hæstvirtur Sigurður Kári er kosinn á þing m.a. til að gæta hagsmuna fyrir. Hvernig yrði samfélag okkar ef hlutafélög yrðu að búa við sífelldan yfirgang og afskiptasemi þingmanna á grunvelli starfsemi þeirrar sem er að fullu lögmæt og eðlileg? Hvort sem það er sala á ritföngum eða prentstarfsemi eða hvað sem mönnum dettur í hug hverju sinni.Það yrði nú ekki beint til að auka samkeppni á markaði að hefta einstaka hlutafélög tilviljanakennt og banna þeim ákveðna starfssemi á grundvelli samsetningar hlutahafhóps þeirra. Það eru helst vinnubrögð sem viðhöfð eru í einræðis og ráðstjórnarríkjum. Sem ég hélt að Sigurður Kári væri eindregið mótfallinn, eða hvað?
Ég er stoltur starfsmaður hlutafélagsins Íslandspósts og frábið mér að ýjað sé að því að ég sé ríkisstarfsmaður. Ég vil starfsfrið fyrir eirðarlausum alþingismönnum sem ættu að líta sér nær. Það að þurfa að sitja undir undirróðursstarfsemi af hálfu háttvirts alþingismanns Sigurðar Kára sem með sanni má kalla ríkisstarfsmann. Er alls ekki ásættanlegt, og væri óskandi að fréttamenn kynntu sér viðfangsefni sín til hlítar áður en til fréttabirtingar kemur líkt og hjá Stöð2.Ef eignarhald Íslandspósts hf. er þyrnir í augum alþingismannsins þá er það við samflokksmenn hans og samstarfsflokk í ríkisstjórn að breyta því. Ekki starfsmanna Íslandspóst er hafa ekki aðstöðu né atkvæðarétt til að stuðla að sölu eigna ríkisins.Við vinnum okkar starf í góðri trú og eftir bestu getu, Sigurður Kári ætti að vinna sína og velja sér viðfangsefni sem hæfa og hætta að hengja bakara fyrir smið.Með óskum að fréttamenn Stöðvar2 jafnt sem alþingismenn nálgist viðgangsefni sín í framtíðinni með meiri fagmennsku og kynni sér báðar hliða mála þeirra sem um er fjallað og þá með hlutlausum hætti.
Virðingarfyllst
Póstmaður
Póstmaður (IP-tala skráð) 4.9.2007 kl. 12:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.