Höfn í Hornafirði

HofnoÞingflokkur Sjálfstæðisflokksins hélt sinn sumarfund þetta árið á Höfn í Hornafirði.  Við funduðum á þriðjudag á Hótel Höfn en nýttum miðvikudaginn til þess að heimsækja fyrirtæki og stofnanir á svæðinu.

Í þetta skiptið heimsóttum við útibú Fiskistofu á Höfn, sjávarútvegsfyrirtækin Bestfisk og Skinney-Þinganes og hið stórmerkilega Humarhótel.  Þá fórum við í hina merku Nýheima þar sem heimamenn kynntu fyrir okkur starfsemi heimanna og sveitarfélagsins auk þess sem við litum við á Jöklasýningunni í bænum.

Að loknum þessum heimsóknum héldum við í skoðunarferð um nágreinni Hafnar, meðal annars inn að Hoffelli og lukum svo ferðinni með heimsókn til Egils Jónssonar og frú Dóru á Seljavöllum þar sem okkur var sýnd einstök gestrisni.

Það er alltaf jafn gaman að koma austur á Höfn.  Náttúrufegurðin á þessu svæði er ótrúleg enda andstæðurnar í landslaginu magnaðar.

Það er vert að nefna það sérstaklega að við í þingflokknum snæddum kvöldverð ásamt heimamönnum á nýju veitingahúsi í miðbæ Hafnar sem heitir Humarhöfnin.  Þar borðaði ég líklega þann besta humar sem ég hef bragðað.  Hann var hreint út sagt frábær.  Humarhöfnin er skemmtilegur veitingastaður sem nýlega var opnaður í gamla Kaupfélagshúsinu í bænum.  Ekki varð ég var við mikla ,,framsóknarlykt" í húsinu, enda ilmurinn af humrinum magnaður.

Mér finnst ástæða til að benda þeim sem leggja leið sína á Höfn í Hornafirði og hafa áhuga á því að borða góðan humar í þessum mikla humarbæ að líta við á Humarhöfninni.  Þaðan fer enginn svikinn.

Sigurður Kári.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband