Fimmtudagur, 16. ágúst 2007
Áhugaverð ráðstefna RSE um gjaldmiðla og alþjóðavæðingu
Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál, RSE, stendur fyrir mjög áhugaverðri ráðstefnu á fimmtudaginn í næstu viku. Á ráðstefnunni, sem fram fer á Hótel Nordica og ber yfirskiftina ,,Gjaldmiðlar og alþjóðavæðing", verður fjallað um áhrif aukins efnahagslegs frelsis á stöðu gjaldmiðla.
Ráðstefnan er kjörinn vettvangur fyrir þá sem áhuga hafa á gjaldeyrismálum og stöðu einstakra gjaldmiðla, svo sem krónunnar, en um fátt hefur jafn mikið verið rætt á síðustu misserum á Íslandi en stöðu íslensku krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum.
Hinn nýskipaði viðskiptaráðherra, Björgvin G. Sigurðsson, mun flytja setningarávarp á ráðstefnunni. Það verður áhugavert að heyra sjónarmið ráðherrans til þessa málefnis, en eins og kunnugt er hefur Björgvin G. Sigurðsson ekki talist til helstu talsmanna íslensku krónunnar og hefur, af því er ég best veit, verið talsmaður þess að við Íslendingar tökum upp evru í stað krónu.
RSE hefur fengið nokkra valinkunnu sérfræðinga til að flytja erindi á ráðstefnunni.
Ber þar fyrst að nefna Benn Steil, forstöðumann aþjóðahagfræðisviðs Council on Foreign Relations, en erindi hans mun bera yfirskriftina ,,Endalok þjóðargjaldmiðla." Óhætt er að segja að sjónarmið Steil um þjóðargjaldmiðla hafi vakið athygli.
Þá mun Gabriel Stein, aðalhagfræðingur alþjóðahagfræðisviðs hjá Lombard Steet Research, flytja erindi um smáríki og myntbandalög.
Þriðji erlendi gesturinn á ráðstefnunni er Manuel Hinds, fyrrum fjármálaráðherra El Salvador, en hans erindi ber yfirskriftina ,,Dollaravæðing, skref fyrir skref."
Ársæll Valfells, lektor við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, mun síðan fjalla um stöðu íslensku krónunnar.
Að loknum þessum erindum munu fyrirlesararnir fjórir sitja í pallborði ásamt innlendum sérfræðingum og aðilum úr viðskiptalífinu og ræða málefni ráðstefnunnar.
Það er ástæða til að mæla með þessari ráðstefnu RSE um þetta hitamál sem hefur verið svo áberandi í þjóðmálaumræðunni á Íslandi, enda ekki á hverjum degi sem jafn frambærilegir erlendir gestir koma hingað til lands til viðræðna um þessi málefni.
Sigurður Kári.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 17.8.2007 kl. 11:00 | Facebook
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
allib
-
almaogfreyja
-
andrigeir
-
audbergur
-
audunnh
-
abg
-
axelaxelsson
-
arniarna
-
aslaugfridriks
-
astamoller
-
baldher
-
baldvinjonsson
-
benediktae
-
bergrun
-
kaffi
-
bergurben
-
bjarnihardar
-
bjarnimax
-
bjorgvinr
-
sveifla
-
binnag
-
bryndisharalds
-
skordalsbrynja
-
brandarar
-
charliekart
-
dansige
-
doj
-
deiglan
-
doggpals
-
egillg
-
erla
-
erlendurorn
-
skotta1980
-
ea
-
fsfi
-
vidhorf
-
hressandi
-
gammurinn
-
gerdurpalma112
-
gisliivars
-
gisliblondal
-
gillimann
-
grettir
-
gudni-is
-
gummibraga
-
phoenix
-
gunnarbjorn
-
gussi
-
laugardalur
-
habbakriss
-
smali
-
haddi9001
-
hhbe
-
handsprengja
-
730bolungarvik
-
heimssyn
-
herdis
-
hildurhelgas
-
drum
-
hjaltisig
-
hlekkur
-
kolgrimur
-
hlodver
-
don
-
hvitiriddarinn
-
ingabesta
-
golli
-
ibb
-
bestiheimi
-
jakobk
-
fun
-
stjornun
-
skallinn
-
jonasegils
-
forsetinn
-
jonmagnusson
-
bassinn
-
jonsnae
-
julli
-
komment
-
karisol
-
kje
-
kjarrip
-
kjartanvido
-
kolbrunb
-
kristinrichter
-
kristjanb
-
kristjangudm
-
liljabolla
-
altice
-
maggaelin
-
gummiarnar
-
martasmarta
-
mal214
-
nielsfinsen
-
ottoe
-
olibjossi
-
obv
-
nielsen
-
skari
-
pkristbjornsson
-
jabbi
-
pbj
-
storibjor
-
iceland
-
pjeturstefans
-
raggibjarna
-
raggiraf
-
raggipalli
-
ragnar73
-
schmidt
-
bullarinn
-
salvor
-
fjola
-
sigbragason
-
vitaminid
-
joklamus
-
sv11
-
sjonsson
-
siggikaiser
-
sisi
-
siggisig
-
sigurgeirorri
-
mogga
-
sigurjonb
-
sms
-
sjalfstaedi
-
hvala
-
hvirfilbylur
-
stebbifr
-
eyverjar
-
styrmirh
-
summi
-
brv
-
sveinn-refur
-
stormsker
-
saethorhelgi
-
tidarandinn
-
daystar
-
valdimarjohannesson
-
valgerdurhalldorsdottir
-
vefritid
-
nytthugarfar
-
vibba
-
villagunn
-
va
-
villithor
-
xenon
-
thorbjorghelga
-
steinig
-
thorsteinnhelgi
-
thorasig
-
doddidoddi
-
thorolfursfinnsson
-
toddi
-
hugsun
-
ornsh
Athugasemdir
„eins og kunnugt er hefur Björgvin G. Sigurðsson talist til helstu talsmanna íslensku krónunnar og hefur, af því er ég best veit, verið talsmaður þess að við Íslendingar tökum upp evru í stað krónu.“ Er ekki eitthvað bogið við þessa málsgrein?
Er Björgvin kannski hinn dæmigerði stjórnmálamaður sem lýsir einarðlega skoðun sinni án þess þó að hún komi í ljós.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 17.8.2007 kl. 08:06
Kærar þakkir fyrir athugasemdina Sigurgeir. Hún er réttmæt, enda fórst fyrir að skrifa orðið ,,ekki" inn í setninguna.
Ég hef nú leiðrétt þessa villu og hljómar setningin nú svo:
,,Hinn nýskipaði viðskiptaráðherra, Björgvin G. Sigurðsson, mun flytja setningarávarp á ráðstefnunni. Það verður áhugavert að heyra sjónarmið ráðherrans til þessa málefnis, en eins og kunnugt er hefur Björgvin G. Sigurðsson fram til þessa ekki talist til helstu talsmanna íslensku krónunnar og hefur, af því er ég best veit, þvert á móti verið talsmaður þess að við Íslendingar tökum upp evru í stað krónu."
Þetta leiðréttist hér með.
Sigurður Kári.
Sigurður Kári Kristjánsson, 17.8.2007 kl. 11:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.