Tekjublöð Frjálsar verslunar og Mannlífs

ma0711Ef mér skjátlast ekki munu óseld tekjublöð Frjálsrar verslunar og Mannlífs verða fjarlægð úr sölurekkum bókabúða og verslana á næstu dögum.  Ástæðan er sú að samkvæmt lögum er einungis heimilt að birta þær viðkvæmu persónuupplýsingar sem þar er að finna í takmarkaðan tíma, eða í tvær vikur ef ég man rétt.

Ég ætla ekki að ítreka skoðanir mínar hér á því hversu ósmekklegt mér finnst að tekjur nafngreindra manna séu birtar á torgum.  Þeim hef ég margoft komið á framfæri og sé ekki ástæðu til þess að gera það aftur hér.

thumbnail_286801Mér þætti hins vegar áhugavert að fá upplýsingar um það, þegar síðasti söludagur þessara blaða er á enda runninn, hversu margir Íslendingar sáu ástæðu til að fjárfesta í þessum blöðum.

Ég geri ekki ráð fyrir að útgefendur þessara blaða muni leggja sig sérstaklega fram um að birta þær upplýsingar, enda myndu þær upplýsa með nokkuð áreiðanlegum hætti hversu miklar tekjur útgefendur þeirra hefðu af því að birta tekjur annarra.  

En það væri sannarlega áhugavert ef hægt væri að upplýsa hversu vel salan hefði gengið þetta árið.  Eiginlega væri sanngjarnt að birta þessar upplýsingar í ljósi þess hvert umfjöllunarefni blaðanna er.

Sigurður Kári.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sævar Einarsson

Já það er alger skandall að fólk geti vitað hvort það hafi það verra en aðrir, tala nú ekki um konur sem vilja athuga hvort þær séu lægri launum en karlinn í sambærilegu starfi, þeim kemur það bara ekkert við og þetta er eini sénsinn til að vita hvort svo sé, þessu þarf að breita ! launaleynd rúlar ...

Sævar Einarsson, 16.8.2007 kl. 09:05

2 Smámynd: Björgvin S. Ármannsson

Það sem mér finnst áhugavert er hversu margir af þeim sem eru áberandi í þjóðlífinu og lifa hátt eru með vinnukonuútsvar.

Björgvin S. Ármannsson, 16.8.2007 kl. 11:50

3 Smámynd: Sævar Einarsson

Góður punktur Björgvin, það er einmitt mjög bagalegt að eiga risa einbýlishús, dýra bíla og gefa svo upp vinnukonuútsvar í skatta, ég get skilið gremju hjá því fólki að þurfa að svara fyrir svoleiðis gjörning. Ég get skilið að þessar upplýsingar  virki ekki ef fólk vinnur á kantinum sem virðist vera þjóðaríþrótt margra spillta Íslendinga og ég sé eftir því að hafa ekki skrifað nafnið mitt í þessa bók. Og svaraðu mér Skúli og Sigurður, hvernig geta t.d. konur fylgst með því hvort það sé verið að mismuna þeim launalega séð ef þetta verður lagt af ?

Sævar Einarsson, 16.8.2007 kl. 11:57

4 Smámynd: Valgerður Halldórsdóttir

Finnst þér hinsvegar ekki áhugavert hve mikið af eignamiklu fólki hefur litlar tekjur?

Valgerður Halldórsdóttir, 16.8.2007 kl. 14:28

5 Smámynd: Sævar Einarsson

Valgerður, þegar það er farið að svíða undan spurningum, þá er settur plástur á sárið og svo snúið sér svo að öðru, þetta er heitir "SUS style"

Sævar Einarsson, 17.8.2007 kl. 01:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband