Mánudagur, 30. apríl 2007
Hin meintu hagstjórnarmistök
Það hefur verið afar sérkennilegt að fylgjast með frambjóðendum stjórnarandstöðuflokkanna, einkum Samfylkingarinnar og Vinstri grænna, keppast við að reyna að sannfæra almenning um að stjórn efnahagsmála undir forystu Sjálfstæðisflokksins hafi verið ein sorgarsaga. Hin meintu hagstjórnarmistök eru sögð hafa kostað almenning stórfé og að í mikið óefni stefni ef Sjálfstæðisflokknum verði áfram treyst fyrir forystu í landsstjórninni.
Ekki virðist þessi málflutningur hafa fallið í kramið hjá almenningi því samkvæmt skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Morgunblaðið á dögunum kom í ljós að tæplega 60% þjóðarinnar teldi að hagur sinn hefði batnað undir hagstjórn Sjálfstæðisflokksins.
Eftir að niðurstöður könnunarinnar voru birtar hefur minna farið fyrir tali Samfylkingarinnar og Vinstri grænna um hagstjórnarmistök. Hins vegar þurfa niðurstöðurnar ekki að koma á óvart þegar skoðaðar eru þær aðgerðir sem ríkisstjórnin hefur gripið til á undanförnum árum sem leitt hafa til betri lífskjara fyrir almenning.
Frá því að Sjálfstæðisflokkurinn tók við völdum hefur eftirfarandi gerst:
- skuldir ríkissjóðs hafa verið greiddar upp,
- skattar á fólk og fyrirtæki hafa verið lækkaðir,
- kaupmáttur heimilanna hefur að meðaltali aukist um 75% frá árinu 1995,
- atvinnuleysi sem áður var mikið vandamál er nú svo að segja óþekkt,
- háskólanemum hefur fjölgað úr 7.500 í um 17.000 á síðustu 12 árum og fjárframlög til menntamála hafa aldrei verið hærri.
- háskólum hefur fjölgað og námsframboð aukist.
- Ísland er komið í 2. sæti á lista Sameinuðu þjóðanna yfir þau lönd þar sem lífkjör eru best í heiminum.
Þessi listi gæti verið miklu lengri. Eitt er víst að sá mikli árangur sem náðst hefur er ekki til marks um að hagstjórnin á Íslandi hafi einkennst af mistökum á mistök ofan.
Besta sönnun þess hversu vel hefur verið haldið á spilunum í hagstjórninni eru þau loforð sem stjórnarandstöðuflokkarnir hafa treyst sér til að leggja fram í aðdraganda kosninganna. Ef eitthvað væri að marka lýsingar fulltrúa Samfylkingar og Vinstri grænna á hagstjórninni á Íslandi síðustu árin er ólíklegt að þeir auglýstu nú í blöðum af miklum móð að þeir ætluðu sér að gera allt fyrir alla á næsta kjörtímabili. Loforðalistar þeirra og útgjaldatillögur sanna að vel hefur verið haldið á rekstri ríkisins á síðustu árum. Loforðaflaumurinn afhjúpar hversu holur hljómur er í gagnrýni þeirra á hagstjórn okkar sjálfstæðismanna.
Mér varð hugsað til þessarar umræðu og þeirra mistaka sem sagt er að gerð hafi verið í hagstjórn hér á landi þegar ég rakst á frétt í Blaðinu á föstudaginn var. Í fréttinni segir:
,,Enn versnar efnahagsástandið í Simbabve því seðlabanki landsins tilkynnti í gær að verðbólga hafi hækkað og mælist nú 2.200 prósent. Verðbólgan hefur hækkað mikið í marsmánuði, því síðasta tala sem sibabveski seðlabankinn birti um verðbólgu var ,,einungis" rúmlega 1.700 prósent.
Seðlabankastjórinn Gideon Gono hafnaði kröfu um að simbabveski dollarinn skuli gengisfelldur, en við sama tilefni var tilkynnt að stýrivextir seðlabankans hefðu verið hækkaðir úr fimmhundruð í sexhundruð prósent."
Leiðtogi Zimbabwe er Robert Mugabe. Í stjórnartíð sinni hefur honum ekki verið sérlega umhugað um eignarrétt manna heldur talað fyrir þjóðareign á auðlindum og þjóðnýtt eigur manna. Árangurinn af þjóðnýtingunni hefur skilað þeim árangri sem lýst er í frétt Blaðsins, en fyrir nokkru las ég einhversstaðar að atvinnuleysi í landinu væri um 84%.
Hugsanlega hefur Samfylkingin haft reynslu þeirra í Zimbabwe í huga þegar flokkurinn ákvað að nefna ekki á nafn eitt helsta baráttumál sitt í síðustu kosningabaráttu í þeirri sem nú stendur yfir, fyrningarleið í sjávarútvegi.
Sigurður Kári.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:27 | Facebook
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
allib
-
almaogfreyja
-
andrigeir
-
audbergur
-
audunnh
-
abg
-
axelaxelsson
-
arniarna
-
aslaugfridriks
-
astamoller
-
baldher
-
baldvinjonsson
-
benediktae
-
bergrun
-
kaffi
-
bergurben
-
bjarnihardar
-
bjarnimax
-
bjorgvinr
-
sveifla
-
binnag
-
bryndisharalds
-
skordalsbrynja
-
brandarar
-
charliekart
-
dansige
-
doj
-
deiglan
-
doggpals
-
egillg
-
erla
-
erlendurorn
-
skotta1980
-
ea
-
fsfi
-
vidhorf
-
hressandi
-
gammurinn
-
gerdurpalma112
-
gisliivars
-
gisliblondal
-
gillimann
-
grettir
-
gudni-is
-
gummibraga
-
phoenix
-
gunnarbjorn
-
gussi
-
laugardalur
-
habbakriss
-
smali
-
haddi9001
-
hhbe
-
handsprengja
-
730bolungarvik
-
heimssyn
-
herdis
-
hildurhelgas
-
drum
-
hjaltisig
-
hlekkur
-
kolgrimur
-
hlodver
-
don
-
hvitiriddarinn
-
ingabesta
-
golli
-
ibb
-
bestiheimi
-
jakobk
-
fun
-
stjornun
-
skallinn
-
jonasegils
-
forsetinn
-
jonmagnusson
-
bassinn
-
jonsnae
-
julli
-
komment
-
karisol
-
kje
-
kjarrip
-
kjartanvido
-
kolbrunb
-
kristinrichter
-
kristjanb
-
kristjangudm
-
liljabolla
-
altice
-
maggaelin
-
gummiarnar
-
martasmarta
-
mal214
-
nielsfinsen
-
ottoe
-
olibjossi
-
obv
-
nielsen
-
skari
-
pkristbjornsson
-
jabbi
-
pbj
-
storibjor
-
iceland
-
pjeturstefans
-
raggibjarna
-
raggiraf
-
raggipalli
-
ragnar73
-
schmidt
-
bullarinn
-
salvor
-
fjola
-
sigbragason
-
vitaminid
-
joklamus
-
sv11
-
sjonsson
-
siggikaiser
-
sisi
-
siggisig
-
sigurgeirorri
-
mogga
-
sigurjonb
-
sms
-
sjalfstaedi
-
hvala
-
hvirfilbylur
-
stebbifr
-
eyverjar
-
styrmirh
-
summi
-
brv
-
sveinn-refur
-
stormsker
-
saethorhelgi
-
tidarandinn
-
daystar
-
valdimarjohannesson
-
valgerdurhalldorsdottir
-
vefritid
-
nytthugarfar
-
vibba
-
villagunn
-
va
-
villithor
-
xenon
-
thorbjorghelga
-
steinig
-
thorsteinnhelgi
-
thorasig
-
doddidoddi
-
thorolfursfinnsson
-
toddi
-
hugsun
-
ornsh
Athugasemdir
Sigurður hvað á þetta fólk annað að segja? Það er voðaleg erfitt að vera í stjórnarandstöðu á uppgangstímum. Það helsta sem volað er yfir eru biðlistar en líkt og með annað skilja þessar skonsur ekki að fyrst kemur þörfin þ.e. 200 einsatklingar á listann á 2 mánuðum og síðan kemur lausnin þ.e. komum þessu í hendur á einkaaðilum eða eins og vinnsælla virðist vera dælum nógu miklum fjármunum í þetta og vandinn leysist.
Spurning dagsins frá Geir Ágústsyni: Hve oft hefur umræða um biðlista eftir heyrnatækjum komið upp síðan einkaaðilum var leyft að bjóða upp á slíkan búnað?
Kv Frjálshyggjumaðurinn
Vilhjálmur Andri Kjartansson (IP-tala skráð) 30.4.2007 kl. 17:04
Til frekari fróðleiks má geta þess að hinn raunverulegi biðlisti er listi samfylkingarinnar, það er fólkið sem hefur verið á biðlista eftir að komast með krumlurnar í kjötkatlana.
Vilhjálmur Andri Kjartansson (IP-tala skráð) 30.4.2007 kl. 18:12
Uppgangur íslensks efnahagslífs á sér, að mestu, uppruna í lánsfjársukki í gegnum einkavinavæddu bankana. Ég vona eins og flestir aðrir að lendingin úr þessu "efnahagsundri" verði mjúk. Ég tel hins vegar rétt að vera viðbúinn skelli.
Skuldleysi ríkissjóðs á sér, að hluta, uppruna sinn í sölu ríkisbankanna, símans og annarra fyrirtækja sem hafa verið afhent þóknanlegum kaupendum. Það hefur aldrei þótt vera sérstakt afrek að losna við skuldir með eignasölu.
Haukur Nikulásson, 3.5.2007 kl. 16:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.