,,Samviskulausir síbrotamenn" og ,,mexíkóskur bófaflokkur"

Það gengur illa hjá Samfylkingunni.  Skoðanakannanir sem gerðar hafa verið í aðdraganda þessara kosninga benda til þess að flokkurinn sé að tapa miklu fylgi frá síðustu kosningum og augljóst er að Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formanni flokksins, hefur mistekist það ætlunarverk sitt að gera Samfylkinguna að raunverulegum valkosti við Sjálfstæðisflokkinn.  Þá er augljóst að tilraunin sem gekk út á það að sameina vinstrimenn á Íslandi undir merkjum Samfylkingarinnar hefur mistekist.  Á það hefur Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins, réttilega bent og raunar bendir ýmislegt til þess að flokkbrotið, Vinstrihreyfingin grænt framboð, sem upphaflega var klofningsframboð út úr Samfylkingunni sé að verða stærra en móðurflokkurinn.

Þetta fer í taugarnar á Samfylkingarfólki og frambjóðendur flokksins geta ekki leynt vonbrigðum sínum.

Pirringur frambjóðenda Samfylkingarinnar birtist nú í þeirri mynd að þeir reyna hvað þeir geta til þess að ata Sjálfstæðisflokkinn og frambjóðendum hans auri, í stað þess að benda á málefni sín og beita rökum.  Jón Baldvin Hannibalsson reið á vaðið þegar hann kallaði varaformann Sjálfstæðisflokksins ,,ljóskuna í menntamálaráðuneytinu", eins og frægt er orðið.  Lærisveinn hans, Árni Páll Árnason, lögfræðingur og frambjóðandi flokksins í suðvesturkjördæmi, hefur ákveðið að fara sömu leið og lærifaðir hans og kosið að ganga lengra ef eitthvað er.

Ég hlustaði á þátt Sigurðar G. Tómassonar á Útvarpi Sögu í morgun.  Viðmælandi Sigurðar nafna míns var áðurnefndur vesturbæingur, Árni Páll Árnason.  Í viðtalinu lét Árni Páll vaða á súðum og skaut þar jafnvel villtustu liðsmönnum Frjálslynda flokksins ref fyrir rass.  Í viðtalinu reyndi Árni Páll að sannfæra hlustendur sína um að Sjálfstæðisflokkurinn bæri ábyrgð á öllu óréttlæti þessa heims.  En hann lét ekki þar við sitja heldur kallaði okkur sjálfstæðismenn ,,samviskulausa síbrotamenn" og líkti flokknum síðan við ,,mexíkóskan bófaflokk."

Það var því eðlilegt að Sigurður G. Tómasson, sem fram til þessa hefur ekki verið talinn einlægasti talsmaður Sjálfstæðisflokksins, skyldi gera athugasemdir við málflutning Árna Páls og sagði:

,,Árni Páll, þú talar mjög illa um Sjálfstæðisflokkinn, svo illa að meira að segja mér stendur ekki á sama."

Það dylst engum sem til þekkir að mikið þarf að ganga á til þess að Sigurður G. Tómasson taki til varna fyrir Sjálfstæðisflokkinn.  Svo mikið er víst.

Hvað á annars svona málflutningur annars að þýða?  Hefur Árni Páll Árnason og Samfylkingin virkilega ekki upp á neitt uppbyggilegra fram að færa í íslenskum stjórnmálum en þetta?  Heldur Árni Páll virkilega að framganga sem þessi sé til þess fallin að afla Samfylkingunni fylgis sem skili honum að lokum þingsæti?

Ég leyfi mér að halda því fram að svo sé ekki.  Ég held að venjulegt fólk vilji vega og meta stefnumál stjórnmálaflokkanna og þær hugmyndir sem þeir vilja koma til framkvæmda, en hafi engan áhuga á sleggjudómum, stóryrðum og uppnefningum eins og þeim sem virðast vera orðnar landlægar innan raða Samfylkingarinnar.

Sigurður Kári.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband