Þriðjudagur, 24. apríl 2007
Annað ógleymanlegt leikrit sem óhætt er að mæla með
Eins og fram kemur á öðrum stað hér á síðunni þá skemmti ég mér stórkostlega á frumsýningu söngleiksins Grettis á sunnudagskvöldið sem sýnt er í Borgarleikhúsinu.
Ég skemmti mér ekki síður vel í gær þegar ég varð vitni að annarri leiksýningu, sem frumsýnd var á Stöð 2, en þá var dregin upp svokölluð ,,nærmynd" af Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formanni Samfylkingarinnar. Stöð 2 dregur slíka nærmynd upp af formönnum allra stjórnmálaflokkanna í aðdraganda alþingiskosninganna.
Í þættinum var fjallað um feril Ingibjargar Sólrúnar. Rifjuð voru upp árin í ráðhúsi Reykjavíkur og brotthvarf hennar úr stóli Borgarstjóra. Lýsti Ingibjörg Sólrún því yfir að hún hefði íhugað að hætta afskiptum af stjórnmálum í kjölfar þess að hafa hrakist úr borgarstjórastólnum eftir að hafa svikið samstarfsmenn sína í R-listanum, úr Framsóknarflokki og Vinstri grænum, og fór í framboð gegn þeim í Alþingiskosningunum 2003.
Þá voru rifjuð upp átök Ingibjargar Sólrúnar og Össurar Skarphéðinssonar um formannsstólinn í Samfylkingunni. Var upplýst að vinátta þeirra hafi hangið á bláþræði og lýsti Össur því yfir að stuðningsmenn hans hefðu orðið fyrir miklum vonbrigðum með niðurstöðuna og sumir þeirra sagt skilið við flokkinn.
Hins vegar vöknaði mér um augun í lok þáttarins þegar ég heyrði að Ingibjörg Sólrún og Össur hefðu náð að slíðra sverðin og væru nú orðnir bestu vinir. Slíkar voru ástarjátningarnar að þær jöfnuðust á við það besta sem þekkist í heimi bókmenntanna. Þetta var sannarlega hjartnæmur og fallegur Hollywood-endir á góðu leikriti.
Það er annars merkilegt hversu miklu púðri Ingibjörg Sólrún og Össur þurfa að eyða í það að reyna að sína fram á hversu samrýmd og samstíga þau eru. Í upphafi þessarar kosningabaráttu birtust af þeim dularfullar brúðkaupsmyndir þar sem þau birtust kjósendum sem skælbrosandi tvíeyki og nú var heilum sjónvarpsþætti eytt í að undirstrika þann mikla vinskap og hlýhug sem á milli þeirra ríkir.
Auðvitað trúa því fáir að Össur sé búinn að sætta sig við aðför Ingibjargar Sólrúnar að honum þegar hann var formaður Samfylkingarinnar sem endaði með því að hún steypti honum af stóli. Það vita þeir sem þekkja Össur. Og við sem störfum í návígi við þetta fólk vitum að á milli þeirra fara kaldir straumar.
Nærmyndin af Ingibjörgu Sólrúnu staðfestir hins vegar þann djúpstæða ágreining sem við höfum staðfastlega haldið fram að hafi ríkt innan Samfylkingarinnar frá því að formannsslagurinn átti sér stað, en Ingibjörg Sólrún, Össur og allt hitt Samfylkingarfólkið hefur reynt að þræta fyrir.
Þátturinn var hins vegar fróðlegur fyrir þeirra hluta sakir að hann leiddi mér fyrir sjónir að klofningurinn innan Samfylkingarinnar er djúpstæðari en ég hafði áttað mig á.
Sigurður Kári.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
allib
-
almaogfreyja
-
andrigeir
-
audbergur
-
audunnh
-
abg
-
axelaxelsson
-
arniarna
-
aslaugfridriks
-
astamoller
-
baldher
-
baldvinjonsson
-
benediktae
-
bergrun
-
kaffi
-
bergurben
-
bjarnihardar
-
bjarnimax
-
bjorgvinr
-
sveifla
-
binnag
-
bryndisharalds
-
skordalsbrynja
-
brandarar
-
charliekart
-
dansige
-
doj
-
deiglan
-
doggpals
-
egillg
-
erla
-
erlendurorn
-
skotta1980
-
ea
-
fsfi
-
vidhorf
-
hressandi
-
gammurinn
-
gerdurpalma112
-
gisliivars
-
gisliblondal
-
gillimann
-
grettir
-
gudni-is
-
gummibraga
-
phoenix
-
gunnarbjorn
-
gussi
-
laugardalur
-
habbakriss
-
smali
-
haddi9001
-
hhbe
-
handsprengja
-
730bolungarvik
-
heimssyn
-
herdis
-
hildurhelgas
-
drum
-
hjaltisig
-
hlekkur
-
kolgrimur
-
hlodver
-
don
-
hvitiriddarinn
-
ingabesta
-
golli
-
ibb
-
bestiheimi
-
jakobk
-
fun
-
stjornun
-
skallinn
-
jonasegils
-
forsetinn
-
jonmagnusson
-
bassinn
-
jonsnae
-
julli
-
komment
-
karisol
-
kje
-
kjarrip
-
kjartanvido
-
kolbrunb
-
kristinrichter
-
kristjanb
-
kristjangudm
-
liljabolla
-
altice
-
maggaelin
-
gummiarnar
-
martasmarta
-
mal214
-
nielsfinsen
-
ottoe
-
olibjossi
-
obv
-
nielsen
-
skari
-
pkristbjornsson
-
jabbi
-
pbj
-
storibjor
-
iceland
-
pjeturstefans
-
raggibjarna
-
raggiraf
-
raggipalli
-
ragnar73
-
schmidt
-
bullarinn
-
salvor
-
fjola
-
sigbragason
-
vitaminid
-
joklamus
-
sv11
-
sjonsson
-
siggikaiser
-
sisi
-
siggisig
-
sigurgeirorri
-
mogga
-
sigurjonb
-
sms
-
sjalfstaedi
-
hvala
-
hvirfilbylur
-
stebbifr
-
eyverjar
-
styrmirh
-
summi
-
brv
-
sveinn-refur
-
stormsker
-
saethorhelgi
-
tidarandinn
-
daystar
-
valdimarjohannesson
-
valgerdurhalldorsdottir
-
vefritid
-
nytthugarfar
-
vibba
-
villagunn
-
va
-
villithor
-
xenon
-
thorbjorghelga
-
steinig
-
thorsteinnhelgi
-
thorasig
-
doddidoddi
-
thorolfursfinnsson
-
toddi
-
hugsun
-
ornsh
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.